Fara í efni
Gervigreind

Glæpsamlegur gamanleikur á Melum

Leikhópurinn í 'Átta konur'. Mynd: aðsend

Í kvöld, fimmtudagskvöldið 5. mars kl. 20:00 frumsýnir Leikfélag Hörgdæla glæpsamlega gamanleikinn Átta konur, eftir Robert Thomas á Melum í Hörgársveit.

Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað? Þegar sjö villtar konur eru samankomnar og sú áttunda bætist í hópinn getur allt gerst, segir í fréttatilkynningu frá Leikfélagi Hörgdæla.

Endirinn síbreytilegur

Verkið er þannig skrifað að það er undir leikstjóra og leikhóp komið hvernig verkið endar og það voru komnar nokkrar útgáfur af endi sem allir ganga upp og því var ákveðið að nota þrjá mismunandi enda og í upphafi sýningar verður dregið um hvaða endir verður fyrir valinu í hvert skipti. „Þetta er mjög spennandi fyrir leikarana því þetta heldur þeim á tánum. Það er auðvitað þannig að engar tvær sýningar eru eins en þetta er svona extra og spennandi að sjá hvaða endir fær bestu viðtökurnar. Svo er enn meiri ástæða fyrir leikhúsgesti að koma oftar til að sjá fleiri útgáfur“ segir Fanney Valsdóttir, formaður Leikfélags Hörgdæla.

Það er auðvitað þannig að engar tvær sýningar eru eins en þetta er svona extra og spennandi að sjá hvaða endir fær bestu viðtökurnar

Franska leikskáldið Robert Thomas (1927-1989) var einkum þekktur fyrir það að tvinna saman form sakamálaleikrita og léttra gamanleikja. Þegar leikritið Átta konur var sýnt í París árið 1961 hlaut það leiklistarverðlaunin Prix du Quai des Orfèvres og var leikið við miklar vinsældir. Sævar Sigurgeirsson þýddi og aðlagaði verkið á sínum tíma fyrir Þjóðleikhúsið en það var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2006 í leikstjórn Eddu Heiðrúnar Backman. Sævar samdi líka nýja söngtexta sem prýða sýninguna við lög eins og These Boots Are Made for Walking, Fever, Big Spender og fleiri.

Kolbrún Lilja Guðnadóttir leikstýrir verkinu en hún leikstýrði líka Bróðir minn ljónshjarta fyrir tveimur árum hjá Leikfélagi Hörgdæla. Leikhópurinn samanstendur af vönum leikurum sem hafa tekið þátt í fjöldamörgum uppfærslum og nýgræðingum sem eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu og allt þar á milli. 

Hér má nálgast miða á sýningarnar.