Fara í efni
Gervigreind

„Einstök stemning“ um helgina – MYNDIR

Áætlað er að um 20 þúsund manns hafi verið á Sparitónleikunum á Akureyrarvelli á sunnudagskvöldið. Páll Óskar Hjálmtýsson var síðastur tónlistarmannanna á svið og lauk dagskránni með hálfgerðri flugeldasýningu eins og honum einum er lagið - áður en flugeldasýning Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri, hófst. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Áætlað er að um 20 þúsund manns hafi verið á Sparitónleikunum á Akureyrarvelli á sunnudagskvöldið þegar mest var, segir Davíð Rúnar Gunnarsson úr framkvæmdastjórn fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu. Sparitónleikarnir voru að vanda lokapunktur hátíðarinnar sem haldin var um verslunarmannahelgina.

„Það er erfitt að lýsa þakklætinu sem við finnum eftir svona helgi. Að sjá Akureyri fyllast af fólki á öllum aldri, sjá fjölskyldur skapa saman minningar og finna þá einstöku stemningu sem myndast hér um verslunarmannahelgina er ástæðan fyrir því að við leggjum svona mikla vinnu í hátíðina ár eftir ár,“ segir Davíð Rúnar.

Gleðin skein af andlitum þeirra fjölmörgu sem lögðu leið sína í Kjarnaskóg á sunnudaginn þegar hinn árlegi Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga fór fram. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að Akureyri hafi fyllst af lífi, hlátri og samveru þar sem heimafólk og gestir alls staðar af landinu komu saman og nutu fjölbreyttrar dagskrár alla helgina. Það má til sanns vegar færa, gleðin var nær alls staðar við völd en fáeinir svartir sauðir settu vissulega leiðinlegan blett á veisluna eins og fram kom í fréttum um helgina. Þær uppákomur komu hinum mikla, hamingjusama meirihluta hátíðargesta þó ekki við að öðru leyti en því að hafa átt sér stað í sama bæjarfélagi.

Frá Sparitónleikunum á Akureyrarvelli á sunnudagskvöldið. Mynd: Hilmar Friðjónsson

„Lokadagurinn var sannkölluð hátíð fyrir alla fjölskylduna. Kjarnaskógur iðaði af lífi á hinum vinsæla Skógardegi þar sem fjölskyldur nutu útivistar, leikja, tónlistar og alls þess sem skógurinn hefur upp á að bjóða,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum Einnar með öllu. „Strætó gekk aukalega í skóginn, sem var vel nýtt og setur vonandi pressu á Akureyrarbæ í þeim efnum að skoða að búa til leið þangað allan ársins hring, væri gaman að sjá það gerast að minnsta kosti um helgar. Í miðbænum ríkti áfram lífleg markaðsstemning og á Akureyrarvelli var fjör fram á kvöld með tívolíi, fjölskylduskemmtun og glæsilegum Sparitónleikum sem settu fallegan punkt aftan við hátíðarhelgina.“

Gefðu mér fimmu! Fólki gafst kostur á að reyna sig í bogfimi á Skógardeginum í Kjarnaskógi og þessari litlu stúlku virðist hafa gengið vel því hún fær þarna fimmu frá Alfreð Birgissyni bogfimimeistara í Íþróttafélaginu Akri. Mynd: Hilmar Friðjónsson

„Við segjum oft að við stjórnum öllu nema veðrinu, sem var þó með okkur liði um helgina og allt annað gekk upp á tíu komma fimm. Við vonum að gestir hafi tekið með sér heim minningar um hlýjar móttökur, samveruna og stemninguna,“ segir Davíð Rúnar, sem áður vitnað til.

Skipuleggjendur segia mikla vinnu og gríðarlega samvinnu að baki hátíðar eins og Einnar með öllu, og vilja koma á framfæri innilegum þökkum til allra sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar; starfsfólks, sjálfboðaliða, viðburðarhaldara, fyrirtækja, félagasamtaka, listafólks, styrktaraðila og viðbragðsaðila sem unnu saman að því að skapa örugga og eftirminnilega hátíð.

„Á Akureyri er ekki bara hjarta í umferðarljósunum, heldur er hjarta í öllu sem við gerum og Ein með öllu er þar ekki undanskilin. Bestu þakkir til Akureyringa sem mættu á alla viðburði því þeirra viðvera er ekki síður mikilvæg en þeirra gesta sem heimsækja okkur. Nú tekur við smá hvíld. En við vitum líka að áður en langt um líður verðum við farin að undirbúa næsta ár, það eru strax komin þónokkur atriði á verkefnalistann,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson.

  • Hilmar Friðjónsson var á ferð með myndavélina alla helgina og hér að neðan fá lesendur að njóta myndaveislu hans frá sunnudeginum.