Fara í efni
Gamli skóli

Þrjú sóttu um embætti skólameistara VMA

Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari VMA flytur ávarp við brautskráningu nemenda í desember á síðast ári. Hún lætur af störfum í sumar. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Þrjár umsóknir bárust um embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri. Einn þeirra sem sækir um er Benedikt Barðason, aðstoðarskólameistari VMA undanfarin ár.

Þessi þrjú sóttu um, allt starfsmenn skólans:

  • Benedikt Barðason, aðstoðarskólameistari VMA
  • Daníel Freyr Jónsson, kennari við VMA
  • Harpa Jörundardóttir, sviðsstjóri brautabrúar og starfsbrautar VMA

Sigríður Huld Jónsdóttir hefur gegnt embætti skólameistara VMA síðan 1. janúar 2016 en sagði starfi sínu lausu á síðasta ári og hættir í vor.

Embættið var auglýst laust til umsóknar 28. apríl sl. með umsóknarfresti til og með 14. maí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára, frá 1. ágúst næstkomandi.