Fara í efni
Gamli skóli

Í dag: Þór - Selfoss og KA - Víkingur

Karlalið bæjarins í knattspyrnu spila bæði á heimavelli í dag á Íslandsmótinu. Þórsarar í Boganum um miðjan dag og KA-menn á Greifavelli sínum í kvöld.

Það er stutt á milli leikja hjá Þórsliðinu þessa vikuna því þeir mættu Vestra á Ísafirði á miðvikudaginn í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Þeir biðu lægri hlut þar, töpuðu 2:0, en frammistaðan gegn sterku liði lofaði góðu og gaman verður að sjá hvernig leikmenn Þórs koma undan ferðalaginu. Þór og Selfoss hafa mæst einu sinni í sumar; Þórsarar sigruðu 4:1 á Selfossi í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar.

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    Boginn kl. 16:00
    Þór - Selfoss

Selfyssingum hefur gengið illa það sem af er deildarkeppninni, hafa unnið tvo leiki og sitja í neðsta sæti deildarinnar með sex stig. Þórsarar eru í áttunda sæti með 11 stig, jafn mörg og Suðurnesjaliðin Keflavík og Grindavík, en gætu með sigri í dag farið upp í fjórða sæti.

Staðan í Lengjudeildinni

Efsta liðið í heimsókn

KA-manna býður verðugt verkefni í kvöld þegar þeir fá Víkinga í heimsókn. KA tapaði 1:0 fyrir Vestra á Ísafirði um síðustu helgi en hafði fengið átta sig úr fjórum leikjum þar á undan; gerði jafntefli við ÍBV í Eyjum og Stjörnuna á heimavelli, og sigraði Aftureldingu heima og Fram á útivelli. Leikur liðsins hefur verið mun betri undanfarið en framan af móti og spennandi að sjá hvernig KA-strákunum tekst að eiga við Víkingana. 

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Greifavöllurinn kl. 19:15
    KA - Víkingur

KA er þó enn í 10. sæti með 12 stig úr 11 leikjum en gæti, með sigri í kvöld, farið upp í sjöunda sæti. Víkingar eru efstir í deildinni með 23 stig, einu meira en Íslandsmeistarar Breiðabliks, að loknum 11 leikjum.

Staðan í Bestu deildinni