Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Þór/KA í humátt á eftir toppliðunum

Sandra María Jessen, brosandi fyrir miðri mynd, er komin í gang! Hún gerði tvö mörk í dag og þrjú í leiknum þar á undan. Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA sigraði Fram 3:1 í dag á útivelli í Bestu deild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Liðið er því með 12 stig og í fjórða sæti að sex umferðum loknum. Toppliðin, Breiðablik og Þróttur, eru með 16 stig og FH er í þriðja sæti, einu stigi á undan Þór/KA.

Sigurinn var mjög sanngjarn því Þór/KA var sterkara liðið stærstan hluta leiksins. Framarar ógnuðu nokkrum sinnum og hefðu getað skorað meira en „Stelpurnar okkar“ hefðu sannarlega getað gert það líka.

  • 0:1 – Þór/KA náði forystu á 20. mínútu eftir hraða sókn. Sonja Sigurðardóttir sendi boltann hárnákvæmt inn fyrir vörn Fram, Amalía Árnadóttir náði að skjóta framhjá markverðinum sem kom langt út á móti, boltinn fór í stöngina fjær og út í markteiginn en Amalía var fyrst á vettvang og skoraði. Þetta var hennar fyrsta mark í efstu deild Íslandsmótsins.
  • 0:2 – Hálftími var liðinn þegar Þór/KA skoraði aftur. Sandra María Jessen fékk frábæra sendingu fram vinstri kantinn frá bakverðinum Henríettu Ágústsdóttur, lék inn í vítateig og sendi boltann í netið, á milli nærstangarinnar og markvarðarsins. Afar vel gert hjá Söndru Maríu.

Fáránlegt brot

Óhjákvæmilegt er að nefna að aðeins mínútu eftir að Sandra María skoraði braut Framarinn Alda Ólafsdóttir illa á Henríettu úti á miðjum velli og var áminnt með gulu spjaldi. Segja má að Alda hafi verið heppin að sleppa með gult fyrir fáránlegt og gróft brot; hún elti Henríettu uppi og þrumaði hana niður. Leikurinn var stöðvaður drjúga stund á meðan stumrað var yfir Henríettu, hún hélt áfram leik en var skipt af velli þegar aðeins rúm mínúta var liðin af seinni hálfleik.

  • 1:2Murielle Tiernan minnkaði muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiks með föstu skoti af stuttu færi eftir langa aukaspyrnu inn á teig.
  • 1:3Sandra María skoraði aftur á 60. mín­útu. Hægri bakvörðurinn, Ang­ela Mary Helga­dóttir, sendi boltann glæsilega utan af kanti inn á vítateig þar sem Sandra María skaust fram fyrir varnarmann og skallaði í fjærhornið. Frábærlega gert.

Sandra María, markadrottning og besti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra, skoraði ekki í fyrstu fjórum umferðum deildarinnar í ár en nú er allt orðið hefðbundið á ný. Í raun skiptir ekki máli hver kemur boltanum í markið í leikjum, svo lengi sem Þór/KA vinnur, en í stóra samhenginu er samt mikilvægt að Sandra María skori. Þá líður örugglega öllum betur en ella ... 

Næsti leikur Þórs/KA er gegn Stjörnunni á heimavelli næsta laugardag og síðan sækja stelpurnar Þróttara heima í Laugardalinn, laugardaginn 7. júní.

Leikskýrslan

Staðan