Stuðningsmannalagið komið á streymisveitur
Rísið Víkingar!, nýtt stuðningsmannalag sem Rúnar Eff samdi stérstaklega fyrir SA Víkinga, karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí, er komið á streymisveitur. Lagið verður spilað í fyrsta skipti við innkomu liðsins í leik kvöldsins þegar SA Víkingar taka á móti SR í öðrum leik úrslitakeppni Toppdeildar karla í Skautahöllinni á Akureyri. Leikurinn hefst kl. 19:30.
Fjallað var um lagið á akureyri.net fyrr í vikunni - sjá hér - og gefinn smá forsmekkur úr TikTok-myndbandi sem Rúnar birti fyrir fáeinum dögum. Rúnar sagði að oft hafi verið minnst á það við hann að semja slíkt lag og nú er það komið í loftið.
„Mér fannst tilvalið að prufa að gera eitthvað svona kraftmikið og þjóðlegt eða víkingalegt. Eitthvað sem auðvelt er að læra og þjónar líka tilgangi sem hvatning fyrir áhorfendur til þess að öskra með: VÍKINGAR! Úr varð þetta Víkinga-metallag, Rísið Víkingar,“ segir Rúnar og tekur fram að þetta sé fyrsta og líklega eina metal-lagið sem hann semur.