Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Mikil pílugleði við völd á „Sjally Pally“

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Glatt var á hjalla í Sjallanum á laugardagskvöldið síðasta þegar úrslit réðust á Opna Akureyrarmótinu í pílukasti – Sjally Pally, eins og forkólfar píludeildar Þórs kalla mótið, í anda heimsmeistaramótsins sem fer alltaf fram í Ally Pally í London. Svíinn Björn Lejon stóð upp sigurvegari í karlaflokki og Brynja Herborg Jónsdóttir varð hlutskörpust í kvennaflokki.

Um 500 manns fylgdust með á laugardagskvöldið og komust færri að en vildu; þetta fjölmennasta pílumót ársins er ekki einungis íþróttakeppni heldur gleðisamkoma par excellence; gamla, góða Sjallastemningin endurvakin að einhverju leyti, enginn dans að vísu stiginn  við undirleik Eydals en á sviðið stigu Magni Ásgeirsson og rapparinn Saint Pete á milli þess sem pílurnar svifu og karlarnir kunnu úr Ally Pally í gegnum árin, kynnirinn John McDonald og Russ Bray, dómari og „kallari“, hófu upp raust sína.

Ballið búið og gleðin við völd í Sjallanum. Frá vinstri: Kynnirinn John McDonald, Vitor Charrua, Björn Lejon, Brynja Herborg Jónsdóttir, Hrefna Gerður Björnsdóttir og Russ Bray dómari og „kallari“.

Svíinn Björn Lejon sigraði Vitor Charrua 5:2 í úrslitum, en í undanúrslitum hafði Björn betur í einvígi við Alexander Veigar Þorvaldsson,  sigurvegara mótsins á síðasta ári. Vitor sigraði Jón Ragnar Helgason í undanúrslitum.

Andstæðingar Brynju Herborgar í úrslitaleik kvennaflokksins var Hrefna Gerður Björnsdóttur og vann Brynja 4:2.

Vitor Charrua, sem varð annar á mótinu, horfir á eftir pílu sinni stingast í spjaldið.

Svíinn Björn Lejon í úrslitaleiknum á laugardagskvöldið þar sem hann fagnaði sigri.

Gull og silfur. Vitor Charrua, klæddur skrautlegum jakkafötum, sem varð í öðru sæti og sigurvegarinn, Svíinn Björn Lejon.

Kynnirinn John McDonald á sviði Sjallans á laugardagskvöldið.

Gullfólk Sjally Pally 2026, Svíinn Björn Lejon og Brynja Herborg Jónsdóttir.