Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Liðband slitið og Hulda varla meira með í sumar

Hulda Björg Hannesdóttir fyrirliði Þórs/KA: „Ef allt gengur frábærlega og ég spila í lok sumars, þá er það bara plús. En eins og staðan er núna er ég ekki að horfa í það.“ Mynd: Ármann Hinrik
Hulda Björg Hannesdóttir, fyrirliði knattspyrnuliðs Þórs/KA, meiddist þegar fáeinar mínútur eftir af Bestu deildarleiknum við Grindavík/Njarðvík á síðasta degi aprílmánaðar. Nú er komið í ljós, eftir myndtöku, að liðband í hné slitnaði og mjög ólíklegt er talið að hún geti spilað meira í sumar. Þetta kemur fram í frétt á fótbolta.net í dag.

„Að fá niðurstöðuna var bæði svekkjandi og á sama tíma ekki svekkjandi. Sjúkraþjálfarar voru búnir að sjá þetta fyrir með liðbandið, en það var spurning með annað eins og liðþófa og krossband. Það góða var að krossbandið er í lagi, en það var auðvitað leiðinlegt að heyra niðurstöðuna,“ segir Hulda Björg í viðtali við Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Hulda segist hafa fengið að heyra að tímabilinu sé lokið hjá sér en reyndar sé misjafnt hvað hún heyri um endurkomuferli í kjölfar svona meiðsla. „Ef allt gengur frábærlega og ég spila í lok sumars, þá er það bara plús. En eins og staðan er núna er ég ekki að horfa í það. Það er ennþá óvíst hvort ég þurfi að fara í aðgerð eða ekki. Það eru ennþá ósvaraðar spurningar.“

  • Frétt fótbolta.net í dag: 

Tímabilinu lokið hjá Huldu – „Það eru ennþá ósvaraðar spurningar“