Þór/KA vann og hélt sæti í Bestu deildinni
Þór/KA vann Víking 2:0 í Reykjavík í kvöld í lokaumferð Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmóts kvenna í knattspyrnu. Akureyrarliðið heldur því sæti sínu í deildinni en Reykjavíkurfélögin Víkingur og Valur falla. Valur vann Fram 2:1 á útivelli í kvöld en það dugði ekki til.
Það var María Dögg Jóhannesdóttir sem braut ísinn með marki af stuttu færi eftir darraðardans í vítateiginum á 75. mínútu og Erin Flurey gulltryggði sigur Stelpnanna okkar á 84. mín. með góðu skoti eftir skyndisókn.
Staðan í leik Víkings og Þórs/KA var enn 0:0 þegar Valur komst yfir gegn Fram í Úlfarsárdal og hefði leikurinn í Víkinni endað með jafntefli hefðu lið Þórs/KA og Víkings fallið en Valur haldið sæti í deildinni. Valur varð síðast Íslandsmeistari árið 2023 en fellur nú í fyrsta sinn úr efstu deild.
Meira seinna í kvöld

Leikmenn Þórs/KA fögnuðu að vonum innilega eftir að flautað var til leiksloka í Víkinni. Mynd: Haraldur Ingólfsson