Fara í efni
Fréttaannáll

Terra veitir Síðuskóla umhverfisverðlaun

Helgi Pálsson, rekstrarstjóri Terra, Ólöf Inga Andrésdóttir, skólastjóri Síðuskóla og Kristbjörn Viðar Baldursson, sölu- og þjónustustjóri Terra.
Síðuskóli hefur hlotið umhverfisverðlaun Terra fyrir árið 2025. „Verðlaunin hlýtur eitt fyrirtæki eða stofnun sem sker sig úr hvað varðar flokkun úrgangs ár hvert. Samkvæmt umsögn frá Terra varð Síðuskóli fyrir valinu vegna þess að marktækur munur er á flokkun á úrgangi sem kemur frá skólanum miðað við aðrar stofnanir og fyrirtæki sem Terra þjónustar,“ segir á vef skólans þar sem greint er frá tíðindunum.
 
Þeir Helgi Pálsson, rekstrarstjóri Terra, og Kristbjörn Viðar Baldursson, sölu- og þjónustustjóri Terra, komu við í Síðuskóla í gær og afhentu Ólöfu Ingu Andrésdóttur skólastjóra skjal þessu til staðfestingar ásamt blómvendi.
 
„Með þessu vonar Terra að verðlaunin verði Síðuskóla enn frekari hvatning og þau séu ekki síður hvetjandi fyrir aðrar stofnanir bæjarins sem vilja gera enn betur í sínum umhverfismálum,“ segir á vef skólans. „Við í Síðuskóla erum að vonum stolt og ánægð með þessa viðurkenningu enda hefur skólinn verið Grænfánaskóli síðan 2006 og mikil áhersla lögð á að virðing fyrir umhverfinu sé sjálfsagður þáttur í öllu okkar skólastarfi,“ segir ennfremur í tilkynningunni.