Framhaldsskólar
Þrjú verkefni fengu styrk úr Sprotasjóði
13.04.2026 kl. 22:00
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt styrkþegum og Braga Þór Svavarssyni stjórnarformanni Sprotasjóðs. Mynd: stjornarradid.is.
Þrír skólar á Akureyri fengu styrk úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2026-2027 en styrkirnir voru afhentir um nýliðna helgi. Alls bárust sjóðnum 39 umsóknir og 20 verkefni hlutu styrk. Samtals var úthlutað tæpum 65 milljónum króna að þessu sinni.
Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga.
Áherslusvið sjóðsins vegna ársins 2026 voru tvenns konar:
- Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi.
- Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn sl. laugardag. Þessir skólar á Akureyri hlutu styrk í ár:
- Lundarsel - Pálmholt: Að undrast – samræður í leikskólastarfi. Styrkupphæð 3.360.000 krónur.
- Glerárskóli: Fjársjóðskort og fjölbreyttar kennsluaðferðir. Styrkupphæð 2.500.000 krónur.
- Iðavöllur: Fjárfestum í framtíðinni – jöfn tækifæri til náms. Styrkupphæð 2.000.000 krónur.