Fara í efni
Framhaldsskólar

Alþjóðleg kennslubók Guðmundar og kollega

Jenny M. Stuber, James M. Thomas og Guðmundur Oddsson (t.h.), höfundar nýrrar inngangsbókar í félagsfræði. Mynd unak.is.

Guðmundur Oddsson, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri (HA), hefur ásamt tveimur bandarískum samstarfsmönnum gefið út nýja alþjóðlega kennslubók í félagsfræði. Bókin, The Power of Sociology: Grasping Our Unequal World, er gefin út af háskólaútgáfunni SAGE Publications og er ætluð sem inngangsbók fyrir háskólanema í félagsfræði.

Meðhöfundar Guðmundar eru Jenny M. Stuber, prófessor við University of North Florida, og James M. Thomas, prófessor við University of Mississippi. Í bókinni er fjallað um helstu undirsvið félagsfræðinnar með sérstakri áherslu á félagslegan ójöfnuð, vald og samfélagsvirkni, auk þess sem lögð er meiri áhersla á alþjóðlegan samanburð en almennt tíðkast í sambærilegum kennslubókum.

„Höfuðmarkmið bókarinnar er að kynna lesendur fyrir félagsfræði með því að undirstrika megin viðfangsefni fræðigreinarinnar: Félagslegan ójöfnuð. Það sem einkennir einnig bókina er áherslan á vald, sem er eitt allra mikilvægasta hugtak félagsfræðinnar,“ segir Guðmundur um bókina í frétt á vefsíðu HA. Þótt bókin sé fyrst og fremst ætluð grunnnemum í Bandaríkjunum segir hann hana jafnframt henta vel til kennslu í öðrum löndum, þar á meðal á Íslandi, enda er í henni að finna ýmis dæmi úr íslensku samfélagi.

Samkvæmt því sem kemur fram á vefsíðu HA er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur fræðimaður gefur út alþjóðlega inngangsbók í félagsfræði sem er sérstaklega ætluð til kennslu við háskóla víða um heim. Bókin er 656 blaðsíður að lengd, skiptist í 16 kafla og kemur út bæði sem prentuð bók, rafbók og í stafrænu kennsluumhverfi útgefandans.