Fara í efni
Fimleikar

Þórsarar fá loks tækifæri til að svara!

Þórsarinn Orri Freyr Hjaltalín og Kristján Örn Sigurðsson leikmaður KA í baráttu um boltann í fyrri leik Akureyrarfélaganna sumarið 2002, ári sem þau mættust síðast í efstu deild. Til gamans má geta þess að þeir eru jafnaldrar, fæddir 1980, og léku saman í yngri flokkum. Mynd: Kristján Kristjánsson

Eftir 24 ára bið fá Þórsarar loksins tækifæri til að svara fyrir síðustu leiki sína gegn KA í efstu deild karla í fótbolta. Liðin mætast í fimmtu umferð Bestu deildarinnar á nýja Þórsvellinum á morgun, laugardaginn 2. maí klukkan 16 en þetta er fyrsti leikur umferðarinnar.

Erkifjendurnir á Akureyri mættust síðast í deild þeirra bestu árið 2002. Þá fóru leikar þannig að KA vann fyrri leikinn 30. maí, 1-0, með marki sem Ásgeir Már Ásgeirsson skoraði beint úr aukaspyrnu á 10. mínútu, og líka seinni leikinn sem fram fór 1. ágúst, einnig 1-0. Þá skoraði skoski miðjumaðurinn Neil McGowan sigurmarkið með skalla eftir aukaspyrnu Jóhanns Helgasonar. Báðir leikirnir fóru fram á Akureyrarvelli, sameiginlegum heimavelli liðanna um árabil.

Úrklippa úr Morgunblaðinu eftir fyrri leik Akureyrarfélaganna sumarið 2002. KA-menn höfðu betur og það var sannarlega tímamótasigur; fyrsti sigur KA á Þór í efstu deild Íslandsmótsins í 14 tilraunum.

Söguleg úrslit

Þetta voru söguleg úrslit því fram að því hafði Þór aldrei tapað fyrir KA í fjórtán viðureignum liðanna í efstu deild, ekki einu sinni árið 1989 þegar KA hampaði Íslandsbikarnum í fyrsta og eina skiptið til þessa. Þá enduðu báðir leikirnir með jafntefli.

Áhorfendur létu sig ekki vanta á leiki liðanna árið 2002 því 2.150 manns sáu fyrri leikinn og 1.892 þann síðari. Þetta voru tveir af átta best sóttu leikjum deildarinnar á þessu herrans ári. Enda var áhuginn mikill á Akureyri í kjölfar þess að liðin voru bæði nýliðar í deildinni en Þór hafði unnið 1. deildina 2001 og KA fylgdi á eftir í öðru sætinu.

Þjálfarar Akureyrarliðanna þungt hugsi fimmtudagskvöldið 1. ágúst árið 2002, síðast þegar þau mættust í efstu deild Íslandsmótsins. Til vinstri Þorvaldur Örlygsson þjálfari Ka og hægra megin Kristján Guðmundsson þjálfari Þórs. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Barátta á kostnað gæðanna

Einar Sigtryggsson skrifaði um báða leikina fyrir Morgunblaðið. Um þann fyrri sagði hann að eins og oft í grannaslag hefði baráttan verið í fyrirrúmi á kostnað gæðanna. Hlynur Birgisson og Slobodan Milisic hefðu verið bestu menn liðanna en leikmenn verði samt að fá hrós fyrir prúðmannlegan leik, “en slíkt hefur ekki alltaf þótt sjálfsagður hlutur í leikjum liðanna til þessa.”

Um seinni leikinn, sem fram fór á fimmtudagskvöldinu fyrir verslunarmannahelgina, sagði Einar m.a. að KA hefði haldið sínum hlut án teljandi vandræða. „Þórsarar voru óvenju daprir en þeir hafa yfirleitt leikið af fullum krafti gegn Brekkusniglunum gulu og bláu,“ skrifaði Einar.

Valur Sæmundsson, sem nú skrifar fyrir akureyri.net, ræddi við Þorvald Örlygsson þjálfara KA og Pál Viðar Gíslason fyrirliða Þórs fyrir Morgunblaðið eftir seinni leikinn. Þorvaldur var sáttur við frammistöðu sinna manna. „Eftir að við þéttum vörnina í seinni hálfleik áttu þeir ekki mörg færi,“ sagði núverandi formaður KSÍ. Páll tók í svipaðan streng. „Við áttum engin svör við varnarleik þeirra og ég tel að við höfum tapað leiknum með því að skora ekki í fyrri hálfleik,“ sagði fyrirliði Þórs.

 

Fjöldi fólks lagði leið sína á Akureyrarvöll þegar KA og Þór mættust sumarið 2002 í Símadeildinni eins efsta deild Íslandsmótsins kallaðist þá; 2.150 manns sáu fyrri leikinn, heimaleik KA, og 1.892 þann síðari, heimaleik Þórs, þegar þessi mynd var tekin. Stuðningsmenn KA í stúkunni en Þórsarar voru jafnan í brekkunni norðan við stúkuna. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þessir tóku þátt í leikjunum

  • Liðin voru þannig skipuð í fyrri leiknum árið 2002:

KA (3-5-2): Þórður Þórðarson – Kristján Örn Sigurðsson, Júlíus Tryggvason, Steinn Viðar Gunnarsson – Dean Martin, Slobodan Milisic, Þorvaldur Makan Sigbjörnsson fyrirliði, Ásgeir Már Ásgeirsson, Neil McGowan – Elmar Dan Sigþórsson (Örn Kató Hauksson 69.), Hreinn Hringsson. Þjálfari Þorvaldur Örlygsson.

Þór (5-3-2): Atli Már Rúnarsson – Andri Hjörvar Albertsson, Óðinn Árnason (Örlygur Þór Helgason 51.), Jónas Baldursson (Alexandre Santos 63.), Hlynur Birgisson, Hörður Rúnarsson – Kristján Elí Örnólfsson, Þórður Halldórsson, Páll Viðar Gíslason fyrirliði – Orri Freyr Hjaltalín, Jóhann Þórhallsson. Þjálfari Kristján Guðmundsson.

  • Og þannig í seinni leiknum árið 2002:

Þór (4-4-2): Atli Már Rúnarsson – Ashley Wooliscroft, Kristján Elí Örnólfsson (Hörður Rúnarsson 55.), Jónas Baldursson, Óðinn Árnason – Orri Freyr Hjaltalín (Andri Hjörvar Albertsson 77.), Hlynur Svan Eiríksson, Páll Viðar Gíslason fyrirliði, Þórður Halldórsson (Ingi Hrannar Heimisson 55.) – Jóhann Þórhallsson, Alexandre Santos. Þjálfari Kristján Guðmundsson.

KA (3-5-2): Þórður Þórðarson – Kristján Örn Sigurðsson, Slobodan Milisic, Steinn Viðar Gunnarsson – Dean Martin, Þorvaldur Makan Sigbjörnsson fyrirliði, Neil McGowan, Ásgeir Már Ásgeirsson (Sigurður Skúli Eyjólfsson 89.), Steingrímur Örn Eiðsson – Elmar Dan Sigþórsson, Jóhann Helgason (Hreinn Hringsson 83.) Þjálfari Þorvaldur Örlygsson.

KA í toppbaráttu en Þór féll

Liðin áttu ólíku gengi að fagna árið 2002. KA var lengst af í þriðja sætinu og hafnaði að lokum í því fjórða, á eftir KR, Fylki og Grindavík, með 25 stig úr 18 leikjum. Þórsarar byrjuðu ágætlega en sigu hratt niður, voru komnir í fallsæti um mitt mót og enduðu neðstir með 13 stig, sjö stigum á eftir þremur næstu liðum.

Sigurmarkið í fyrri deildarleik KA og Þórs 2016, í Inkasso deildinni eins og næst efsta deild Íslandsmótsins kallaðist þá. Elfar Árni Aðalsteinsson (9) stingur sér fram fyrir varnarmann og skallar boltann í netið eftir fyrirgjöf Hallgríms Mars Steingrímssonar – og fagnar að hætti hússins. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Á þessum 24 árum hefur mikið vatn runnið til sjávar og vissulega hafa liðin mæst margoft frá árinu 2002. Árlega á undirbúningstímabilinu og svo voru þau oft bæði í 1. deildinni. En reyndar ekki frá árinu 2016, þegar KA vann 1. deildina, átján stigum á undan Þór sem hafnaði í fjórða sæti. Þá vann KA einnig báða leikina, fyrst 1-0 á Akureyrarvelli þar sem Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði sigurmarkið eftir sendingu Hallgríms Mars Steingrímssonar, og svo 3-0 á Þórsvellinum þar sem Almarr Ormarsson, Juraj Grizelj og Bjarki Þór Viðarsson skoruðu sitt markið hver.

Þór verður ofar á töflunni eftir leik

En nú eru Þórsarar ofar í töflunni en KA í fyrsta skipti frá árinu 2015 og mæta til leiks á sínum heimavelli með 6 stig úr fyrstu fjórum leikjunum. Þeir eru í sjöunda sæti deildarinnar á meðan KA situr í tíunda sætinu með aðeins eitt stig. Það eina sem er öruggt við þessa viðureign Akureyrarliðanna er að Þór verður fyrir ofan KA að henni lokinni, hvernig sem fer.