Fara í efni
Fimleikar

Þór tekur á móti ÍR í dag – deild og bikar í vikunni

Fótboltinn heldur áfram að rúlla og leikdagur er hjá karlaliði Þórs í dag, mánudag. Þór/KA spilar í bikarnum á fimmtudag og KA í Bestu deild karla á sunnudag. Þórsarar eiga svo aftur leik á laugardag, en þeir mæta tveimur efstu liðum Lengjudeildarinanr í þessari viku.

MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ - fótbolti

Það er leikdagur hjá Þórsurum í dag þegar þeir fá topplið Lengjudeildarinnar í heimsókn í Bogann. ÍR er með 14 stig í efsta sæti deildarinnar, annað af tveimur liðum í deildinni sem ekki hefur tapað leik. Hitt liðið er Njarðvík sem Þórsarar mæta í 8. umferðinni á laugardag. Þórsarar koma í humátt á eftir þessum liðum, sitja í 4. sætinu með tíu stig úr sex leikjum.

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    Boginn kl. 16
    Þór - ÍR

FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ - fótbolti

Á fimmtudag er komið að átta liða úrslitum í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum. Þór/KA fær FH í heimsókn í Bogann og þar er auðvitað allt eða ekkert í boði eins og ávallt í bikarkeppninni, sigurliðið fer í undanúrslit, en tapliðið er úr leik. Þessi lið mættust í Boganum fyrir rétt rúmum mánuði þar sem gestirnir unnu 3-0. Klárlega vilja leikmenn Þórs/KA bæta fyrir slæman kafla í þeim leik þegar FH skoraði öll mörkin á rúmlega stundarfjórðungi í fyrri hálfleik.

  • Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu
    Boginn kl. 17:30
    Þór/KA - FH

LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ - fótbolti

Þegar þetta er skrifað (á mánudegi) eru Þórsarar í 4. sæti Lengjudeildarinnar, næstefstu deild karla í knattspyrnu, að loknum sex umferðum. Þeir eru með tíu stig, en tveimur sætum ofar og með tveimur stigum meira eru Njarðvíkingar, sem Þórsarar sækja heim á laugardag.
Áður en kemur að viðureign þessara liða í 8. umferð deildarinnar á laugardag eiga bæði liðin leiki í 7. umferðinni á mánudegi þannig að staðan mun væntanlega breytast eitthvað áður en Þórsarar halda til Njarðvíkur.

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    JBÓ völlurinn í Njarðvík
    Njarðvík - Þór 

SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ - fótbolti

KA hefur fikrað sig upp stigatöfluna í Bestu deild karla í knattspyrnu með tveimur sigrum og tveimur jafnteflum í síðustu fjórum leikjum. Á sama tíma hefur Vestri sigið af toppnum eftir góða byrjun í vor. KA er í 9. sæti deildarinnar með 12 stig eftir tíu umferðir, en Vestri í 4. sætinu með 16 stig.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Kerecis-völlurinn á Ísafirði
    Vestri - KA