Fara í efni
Fimleikar

Þjálfararnir González og Mirchandani til Þórs

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur gengið frá ráðningu tveggja þjálfara með mikla alþjóðlega reynslu í lykilstöður innan deildarinnar. Það eru Spánverjarnir Ricardo González Dávila og Lidia Mirchandani, sem taka formlega til starfa hjá félaginu í byrjun ágúst. Greint er frá þessu á heimasíðu Þórs í dag.

„Ricardo mun taka við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna og gegna jafnframt hlutverki aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki karla. Lidia verður í þjálfarateymi meistaraflokkanna ásamt því að leiða þjálfun og þróun yngri flokka sem þjálfari í barna- og unglingastarfi,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig:

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau starfa á Íslandi. Ricardo þjálfaði kvennalið Skallagríms tímabilið 2017–2018 og Lidia lék þá jafnframt með liðinu sem leikstjórnandi. Í kjölfarið hóf hún þjálfunarferil hér á landi og starfaði um árabil hjá körfuknattleiksdeild Keflavíkur við þjálfun stúlkna í yngri flokkum. Hún stýrði liði Keflavíkur til Íslandsmeistaratitils í ungmennaflokki kvenna árið 2023.

Bæði Ricardo og Lidia hafa yfirgripsmikla reynslu af þjálfun bæði innan Evrópu og víðar, og hafa unnið með landsliðum og félagsliðum á Spáni, í Asíu, Suður-Ameríku og á Norðurlöndum. Þekking þeirra á íslensku körfuboltaumhverfi og áhersla á faglega uppbyggingu og langtímaþróun leikmanna gerir þau afar vel í stakk búin til að leiða áframhaldandi þróun körfuknattleiks hjá Þór.

Ráðningin, sem er til þriggja ára, er með það að markmiði að skapa festu og stöðugleika í öllu starfi deildarinnar og byggja upp metnaðarfulla afreksstefnu til framtíðar.“