Fara í efni
Fimleikar

Stelpurnar í KA/Þór flugu inn í úrslitahelgina

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir í dauðafæri í leiknum gegn Gróttu í kvöld og örskömmu síðar söng boltinn í netinu. Hún var markahæst hjá KA/Þór með 5 mörk. Myndir: Eyjólfur Garðarsson

KA/Þór komst í kvöld í undanúrslit bikarkeppni kvenna í handbolta með sannfærandi sigri á Gróttu á Seltjarnarnesi. Staðan í hálfleik var 14:10 fyrir gestina og þremur mörkum munaði í lokin, 24:21, en sigurinn var þó mun öruggari en lokatölurnar gefa til kynna. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2022 sem Stelpurnar okkar komast svo langt í keppninni.

Fjögurra liða úrslitin – bikarúrslitahelgin, sem svo er kölluð – verður í lok mánaðarins. „Helgin“ er reyndar þannig skv. mótaskrá að fjögurra liða úrslit fara fram miðvikudaginn 25. febrúar og úrslitaleikurinn tveimur dögum síðar, föstudag 27. febrúar.

Bikarmeistarar Hauka komust einnig í undanúrslit í kvöld með öruggum sigri á Víkingum, Fram vann ÍR í gær og annað kvöld ræðst hvert fjórða liðið verður þegar FH og Valur mætast.

Seinka þurfti leiknum á Seltjarnarnesi drjúga stund vegna þess að flugvél sem flytja átti lið KA/Þórs suður yfir heiðar bilaði. Leikurinn hófst ekki fyrr en klukkan var langt gengin í níu en töfin á flugi hafði þó engin áhrif á leikmenn liðsins; fall er fararheill og KA/Þór flaug inn í úrslitahelgina. 

Jónatan Magnússon, þjálfari KA/Þórs, ræðir við leikmenn liðsins á Nesinu í kvöld.

Leikurinn var jafn og spennandi framan af en KA/Þór náði þægilegri forystu áður en fyrri hálfleik lauk. Seltirningar mættu hins vegar grimmir til seinni hlutans, minnkuðu muninn niður í eitt mark, 18:17, en þá skelltu gestirnir í fluggírinn á ný, og komust mest sex mörkum yfir, 23:17. Grótta greip til óhefðbundins varnarleiks undir lokin, náði að hrella gestina með því að leika mjög framarlega og minnkaði muninn en það skipti ekki máli; það var of seint í rassinn gripið og leikmenn KA/Þórs fögnuðu að vonum innilega þegar lokaflautið gall.

Mörk KA/Þórs: Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Lydía Gunnþórsdóttir 4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 4, Trude Blestrud Hakonsen 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 2, Susanne Denise Pettersen 2, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1, Tinna Valgerður Gísladóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 14 – Selma Sigurðardóttir 1.

Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 7, Katrín S Scheving Thorsteinsson 5, Edda Steingrímsdóttir 2, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 2, Þóra María Sigurjónsdóttir 2, Edda Steingrímsdóttir 2, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 11.

Leikskýrslan

Trude Blestrud Hakonsen gerði fjögur mörk gegn Gróttu í kvöld; hér er boltinn á leið í markið í eitt skiptið.