Fara í efni
Fimleikar

Öruggur sigur Þórs á Stjörnunni

Örvhenta skyttan danska, Mikkel Bak Scheumann Jensen, er orðinn þekktur fyrir sín þrumuskot, hér lætur hann vaða af löngu færi og gerir eitt fimm marka sinna í gær. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar unnu sanngjarnan sigur á Stjörnunni, 37:32 á heimavelli í gærkvöldi í sjöundu umferð efstu deildar Íslandsmótsins í handbolta, Olísdeildarinnar.

Fyrri hálfleikurinn var sveiflukenndur; Þór byrjaði betur og komst í 4:1 eftir fjórar mínútur, Stjarnan var komið með tveggja marka forystu þegar tæpur stundarfjórðungur var að baki, 9:7, en fimm mín. síðar var munurinn orðinn þrjú mörk, 13:10 – Þór í hag! Lokasveifla hálfleiksins var svo gestunum í hag og þeir voru einu marki yfir að fyrri 30 mínútunum loknum, 17:16.

Stjarnan gerði fyrsta mark seinni hálfleiks, komst í 18:16 en Þór gerði næstu fjögur mörk. Þórsarar mættu grimmir til seinni hálfleiksins, vörnin var betri með Radovanovic í stuði í markinu og sóknin gekk lipurlega; segja má að Þórsstrákarnir hafa nánast valtað yfir gestina fyrsta korterið í seinni hálfleiknum og þeir náðu mest sex marka forskoti, 26:20 um hálfleikinn miðjan (síðan 27:21, 28:22, 29:23, 30:24 og 32:26 þegar 10 mín. voru eftir). Gestirnir söxuðu örlítið á forskotið en sigur Þórs var aldrei í hættu.

Enn nýtti Birkelund þjálfari leikmannahóp Þórs vel, flestir komu við sögu og níu leikmenn skoruðu. Breiddin er meiri en síðustu ár, eins og áður hefur verið nefnt, og mikilvægt að gefa öllum tækifæri. Það skilar sér þegar líður á veturinn.

Með sigrinum stukku Þórsarar upp fyrir Stjörnuna, eru nú í sjöunda sæti með sex stig eins og ÍBV, sem á útileik við Val á morgun til góða, en Stjarnan er áfram með fimm stig í áttunda sæti.

Áhorfendur í gær voru 540 og stemningin í Höllinni skemmtileg eins og oft áður.

Jóhann Geir Sævarsson gerði þrjú mörk úr vinstra horninu í gær; hér er boltinn á leiðinni í netið eftir að hann vippaði laglega yfir Sigurð Dan Óskarsson markvörð. Mynd: Ármann Hinrik

Mörk Þórs: Bertram Simonsen 7, Hafþór Már Vignisson 6, Þórður Tandri Ágústsson 5, Mikkel Bak Scheumann Jensen 5, Hákon Ingi Halldórsson 4, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Jóhann Geir Sævarsson 3, Oliver Möller Christensen 2, Oddur Gretarsson 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 15 (31,9%)

Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 11, Tandri Már Konráðsson 5, Matthías Dagur Þorsteinsson 5, Gauti Gunnarsson 3, Jóhannes Bjorgvin 3, Jóel Bernburg 2, Bjarki Jóhannsson 2, Tóki Friðriksson 1

Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 12, Róbert Örn Karlsson 3 (samtals 28,8%)

Næsti leikur Þórs er gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ þriðjudaginn 27. október kl. 18.30.