Fara í efni
Fimleikar

Góður árangur GA á Íslandsmóti sveita

Sveit Golfklúbbs Akureyrar í flokki pilta 16 ára og yngri varð Íslandsmeistari um helgina, annað árið í röð, og vann allar viðureignir sínar með fullu húsi. Frá vinstri: Gunnar Sveinn Magnússon frá GSÍ, Ágúst Már Þorvaldsson, Barri Björgvinsson, Baldur Sam Harley, Arnar Freyr Viðarsson, Egill Örn Jónsson og Heiðar Davíð Bragason, þjálfari. Mynd: golf.is.

Fjórar sveitir frá Golfklúbbi Akureyrar (GA) tóku þátt í Íslandsmóti golfklúbba í aldursflokkunum 14-18 ára um helgina og náðu frábærum árangri. Sveit GA hampaði Íslandsmeistaratitlinum í flokki stúlkna 18 ára og yngri og sveit pilta 16 ára og yngri gerði slíkt hið sama. Þá náði sveit pilta 18 ára og yngri öðru sætinu í sínum flokki og sveit drengja 14 ára og yngri varð í  þriðja sæti í sínum flokki.

  • Í flokki stúlkna 18 ára og yngri voru sjö lið og mætti sveit GA A-sveit Golfklúbbsins Keilis í úrslitaleik en báðar þessar sveitir unnu allar viðureignir sínar í riðlakeppninni. Sveit GA vann 2:1 sigur í úrslitaleiknum og hampaði því Íslandsmeistaratitlinum. Í sveitinni voru þær Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir, Björk Hannesdóttir, Ragnheiður Svava Björnsdóttir og Embla Sigrún Arnsteinsdóttir.

Gunnar Sveinn Magnússon frá GSÍ afhendir Emblu Sigrúnu Arnsteinsdóttur Íslandsmeistarabikarinn í flokki stúlkna 18 ára og yngri. Bak við þau standa Heiðar Davíð Bragason þjálfari, Björk Hannesdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir og Ragnheiður Svava Björnsdóttir. Mynd: golf.is.

  • Í flokki pilta 18 ára og yngri voru níu lið og þar mætti sveit GA sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG) í úrslitaleik, eftir að bæði liðin höfðu unnið sína riðla. GA-strákarnir þurftu að sætta sig við silfrið eftir tap í úrslitaleiknum 2,5:0,5. Í sveitinni voru þeir Patrekur Máni Ævarsson, Hafsteinn Thor Guðmundsson, Finnur Bessi Sigurðsson og Maron Björgvinsson.
  • Í flokki pilta 16 ára og yngri voru 13 lið. Þar höfðu GA-strákarnir titil að verja og það gerðu þeir með glæsibrag. Unnu alla leiki sína í riðlakeppninni 3:0 og kórónuðu frammistöðuna með 3:0 sigri gegn A-sveit GKG í úrslitaleiknum. Sveitina skipuðu þeir Ágúst Már Þorvaldsson, Arnar Freyr Viðarsson, Egill Örn Jónsson, Baldur Sam Harley og Barri Björgvinsson.
  • Að lokum var sveit GA meðal 17 sveita í flokki drengja 14 ára og yngri og þar lentu GA-drengir í öðru sæti í sínum riðli. Þeir mættu sveit Golfklúbbs Reykjavíkur í viðureign um þriðja sætið í flokknum og höfðu betur. Sveitina skipuðu þeir Kristófer Áki Aðalsteinsson, Bjarki Þór Elíasson, Sesar Blær Gautason, Jóakim Elvin Sigvaldason og Andri Mikael Steindórsson.

Sannarlega glæsilegur árangur hjá ungu kylfingunum í GA og ljóst að gróskumikið barna- og unglingastarf í klúbbnum gefur góð fyrirheit um framtíðina.