Fimleikar
Bríet Sara og Hjálmar frá Vestra til Þórs
30.06.2026 kl. 09:00
Bríet Sara Ásgrímsdóttir og Hjálmar Jakobsson, nýir liðsmenn körfuknattleiksliða Þórs.
Körfuknattleiksdeild Þórs hefur tilkynnt um tvo nýja leikmenn sem skrifað hafa undir samninga við félagið og munu leika með liðum Þórs í 1. deildunum á komandi vetri. Þetta eru þau Bríet María Ásgrímsdóttir og Hjálmar Jakobsson, sem bæði koma til félagsins frá Vestra á Ísafirði.
Í tilkynningu körfuknattleiksdeildar Þórs segir að Bríet María hafi verið í stóru hlutverki hjá Vestra undanfarin ár þar sem hún hafi skapað sér gott orð fyrir dugnað, baráttu og metnað. Bríet María var valin íþróttamanneskja Bolungarvíkur 2025.
Um Hjálmar segir í tilkynningu Þórsara að hann hafi unnið sér sess í meistaraflokki Vestra. Hjálmar hefur tekið þátt í landsliðsverkefnum yngri landsliða KKÍ og þykir efnilegur leikmaður með mikinn metnað.