Fara í efni
Fimleikar

Akureyrarliðin hefja leik á útivöllum

Úr leikjum KA gegn FH og Þórs gegn Val á heimavöllum Akureyrarliðanna í sumar. Ívar Arnbro Þórhallsson slær knöttinn frá marki KA og Einar Freyr Halldórsson geysist í sókn í leik liðsins gegn Val. Myndir: Ármann Hinrik.

Lokakaflinn í Bestu deild karla, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu, er að hefjast. Akureyrarliðin KA og Þór eru bæði í neðri hluta deildarinnar núna þegar keppni hefst eftir tvískiptingu hennar. Fram undan er barátta sex liða, þar sem tvö efstu eru í nokkuð öruggri stöðu, um að forðast fall úr deildinni. Útileikir á dagskrá beggja Akureyrarliðanna í 1. umferðinni í dag.

Svona er staðan þegar keppni í neðri hluta Bestu deildar karla er að hefjast. Hafnarfjörður, Akureyri og Vestmannaeyjar í mestri hættu á að eiga lið sem fellur úr efstu deild. En enn eru 15 stig í pottinum og margt sem á eftir að gerast. Skjáskot af ksi.is.

Bæði Akureyrarliðin í Bestu deild karla hefja leik í neðri hluanum í dag og spila bæði á útivöllum. Hafi stigin verið dýrmæt í hverjum leik fyrir tvískiptingu má segja að verðmæti þeirra tvöfaldist þegar liðin í neðri hlutanum mæta hvert öðru. KA fer í Hafnarfjörðinn og mætir FH, en Þór sækir Val heim að Hlíðarenda.

Leikir FH og KA fyrr í sumar unnust báðir á útivöllum. KA vann 2-1 í Hafnarfirði, en FH vann 1-0 á Akureyri. Það sama á við um leiki Vals og Þórs. Þór vann Val í fyrri leiknum að Hlíðarenda, 2-1, en Valur vann Þór fyrir norðan, 4-2, í seinni leiknum.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti, 1. umferð
    Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 14
    FH - KA

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti, 1. umferð
    Valsvöllur (N1 völlurinn að Hlíðarenda) kl. 14
    Valur - Þór