Fara í efni
Ferðaþjónusta

Skerðing á þjónustu og flugöryggi

Mynd: Þorgeir Baldursson

Í gær var hætt að nota ratsjáraðflug að Akureyrarflugvelli, eftir að hinn langþráði RNP AR aðflugsferill var tekinn í notkun. Ratsjáraðflug hefur verið notað til áratuga og töluverð óánægja er augljóslega með þá ákvörðun að hætta notkun þess nú, enda geta ekki allir nýtt sér nýja aðflugið enn sem komið. Verst er breytingin sögð fyrir Twin Otter vélar Norlandair og Dash 8 – 400 vélar Icelandair.

Þjónustuskerðing sem jafnframt skerðir flugöryggi, segir Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður, lengi flugumferðarstjóri á Akureyrarflugvelli um breytinguna. „Ótímabær aðgerð,“ segir hann jafnframt og bætir við: „Það eina rétta í stöðunni er að virkja ratsjáraðflugið á nýjan leik.“

Njáll Trausti upplýsti á Facebook í kvöld að hann hefði óskað eftir fundi með innviðaráðherra, Eyjólfi Ármannssyni. „Ráðherra hefur tekið vel í þá ósk. Við reiknum með að funda um málið strax eftir helgi og fara yfir þá breyttu stöðu sem nú er uppi á Akureyrarflugvelli,“ segir Njáll Trausti.

„Ótímabær aðgerð“

Færsla Njáls Trausta á Facebook er svohljóðandi:
 
„Í gær var slökkt á ratsjáraðflugi að Akureyrarflugvelli sem að mínu mati er ótímabær aðgerð.
 
Það má öllum vera það ljóst að hér er um þjónustuskerðingu að ræða á Akureyrarflugvelli sem jafnframt skerðir flugöryggi. Þetta snýr fyrst og fremst að Twin Otter vélum Norlandair og Dash 8 – 400 vélum Icelandair sem eru burðarásar í innanlandsflugi um Akureyrarflugvöll.
 
Réttast er að fresta þessari ákvörðun um a.m.k 18 mánuði þannig að Norlandair og Icelandair innanlands geti uppfært búnað í sínum vélum þannig að þessir aðilar geti nýtt sér nýja aðflugsferla áður en ratsjárþjónustan á Akureyrarflugvelli er lögð niður. Það eina rétta í stöðunni er að virkja ratsjáraðflugið á nýjan leik.
 
Í dag óskaði ég eftir fundi með innviðaráðherra, Eyjólfi Ármannssyni. Ráðherra hefur tekið vel í þá ósk. Við reiknum með að funda um málið strax eftir helgi og fara yfir þá breyttu stöðu sem nú er uppi á Akureyrarflugvelli.“
 
Óskiljanleg átylla
 
Víðir Gíslason flugmaður og einn af „vinum Akureyrarflugvallar“ tekur í sama streng og Njáll Trausti. „Isavia tengir aðgerðina við nýjan RNP AR aðflugsferil, sem er afar villandi, enda nýtist sá ferill einkum þotum easyJet og Icelandair,“ skrifar Víðir í athugasemd við Facebook færslu alþingismannsins.
 
„Neikvæð áhrif lokunarinnar beinast hinsvegar að flugvélum í innanlandsflugi, eins og Njáll bendir á. Sú átylla sem Isavia gefur fyrir lokuninni er óskiljanleg þar sem hvorki TwinOtter né Dash8-400 geta nýtt RNP AR flugferil,“ skrifar Víðir. „Isavia ber fyrir sig frávik frá reglum. Frávikið hefur lengi verið þekkt og engin áhrif haft. Hnökralaus rekstur ratsjárinnar í áraraðir hefur margsannað sig í þágu betra aðgengis og flugöryggis, allt frá 1982 þegar aðflug úr suðri var opnað.“
 

Uppfyllir ekki núgildandi kröfur

Á vef Isavia Innanlandsflugvalla var í fjallað um breytinguna í ítarlegu máli. Yfirskrift tilkynningarinnar er Ratsjárbúnaður Akureyrarflugvallar uppfyllir ekki núgildandi kröfur.
 
Pistillinn hefst á þessa leið: „Notkun loftnets við Akureyrarflugvöll verður nú takmörkuð við veðurupplýsingar en það hefur verið í notkun í 55 ár. Í gegnum tíðina hefur ratsjárbúnaður verið endurnýjaður og aðlagaður aðstæðum en uppfyllir ekki lengur núgildandi kröfur um vottun búnaðar sem notaður er við flugleiðsögu. Ratsjáin og verklagið sem hefur verið í notkun á Akureyrarflugvelli hefur einungis nýst til að aðstoða flugmenn við lendingu í slæmum veðurskilyrðum og til upplýsingagjafar um veður en ekki til aðskilnaðar eða annarrar vinnu flugumferðarstjóra.“
 
Greint er frá nýja RNP AR aðfluginu sem býðst nú til viðbótar við gildandi aðflugsferla en notendur þurfa að uppfylla sértækar kröfur um búnað og þjálfun flugmanna. Síðan segir: „Vegna þess að hluti notenda Akureyrarflugvallar er ekki tilbúinn að nýta sér nýju aðflugaðflugsferlana var skoðað að óska eftir framlengingu fráviksins þar til hægt yrði að bjóða upp á fleiri RNP ferla sem gera minni kröfur til notenda. Niðurstaða þeirrar skoðunar er að hvorki verklagið né búnaðurinn uppfyllir kröfur sem gerðar eru til flugleiðsögu og viðbúið að innleiðing nýrra ferla taki um eitt og hálft ár og því ekki fært að fara þá leið.“
 
  • Greinin á vef Isavia Innanlandsflugvalla:

Ratsjárbúnaður á Akureyrarflugvelli