Fara í efni
Ferðaþjónusta

Munu þurfa frá að hverfa í lélegu skyggni

Vél Iclandair tekur á loft á Akureyrarflugvelli um nýliðna helgi. Mynd: Þorgeir Baldursson

Flugstjóri hjá Icelandair segir að ákvörðun Samöngustofu um að hætta að nota ratsjáraðflug að Akureyrarflugvelli muni hafa áhrif á þjónustu fyrirtækisins þar sem Dash-8 vélar félagsins muni þurfa frá að hverfa í þoku og lélegu skyggni. 

Flugstjórinn, Arnar Þór Emilsson, segir að eitt og hálft ár gæti liðið þar til nauðsynlegur búnaður verði tilbúinn þannig að hætt verði að nota nýja aðflugsferla sem teknir voru í notkun í síðustu viku. Hann segist Icelandair ekki hafa búist við ákvörðuninni „á þessum tímapunkti.“ Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Hluta þeirrar fréttar má sjá á mbl.is.

Hætt var að nota ratsjáraðflug að vellinum fyrir helgi eins og akureyri.net greindi frá á föstudagskvöldið. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður og lengi flugumferðarstjóri á Akureyrarflugvelli, gagnrýndi þá ákvörðun í samtali við akureyri.net á föstudagskvöldið. 

Ótímabær aðgerð

„Það má öllum vera það ljóst að hér er um þjónustuskerðingu að ræða á Akureyrarflugvelli sem jafnframt skerðir flugöryggi,“ sagði Njáll Trausti og benti einmitt á að þetta snéri „fyrst og fremst að Twin Otter vélum Norlandair og Dash 8 – 400 vélum Icelandair sem eru burðarásar í innanlandsflugi um Akureyrarflugvöll.“

Hann sagði aðgerðina ótímabæra og það eina rétta í stöðunni væri að virkja ratsjáraðflugið á nýjan leik. „Réttast er að fresta þessari ákvörðun um a.m.k 18 mánuði þannig að Norlandair og Icelandair innanlands geti uppfært búnað

Enginn í Evrópu kominn með leyfi

Arnar Þór Emilsson, flugstjóri hjá Icelandair, segir í Morgunblaðinu í dag: „Þetta mun ekki hafa áhrif á öryggi hjá okkur, en þetta mun hafa áhrif á þjónustuna þar sem við munum þurfa frá að hverfa þegar þoka er og lélegt skyggni.“ 

Blaðamaður Morgunblaðsins bendir á að í yfirlýsingu frá Isavia hafi komið fram að breytingin hafi verið gerð „í nánu samráði við ykkur.“

Því svarar Arnar Þór: „Það var búið að vera samstarf að einhverju leyti og því bjuggumst við ekki við ákvörðun á þessum tímapunkti.“

Arnar Þór segir að búið sé að smíða og teikna upp GPS-aðflug hjá Isavia, en Icelandair og aðrir sem fljúgi innanlands eigi ekki til viðeigandi búnað í sínum vélum. Þá sé þjálfun fyrir flugmenn ekki lokið.

„Það er langt ferli og það er enginn flugrekstraraðili í Evrópu sem er kominn með leyfi fyrir þessum aðflugum á Dash 8-flugvélar, sem við rekum. Þetta er mjög flókið, það þarf að vinna þetta með framleiðandanum, smíða prógramm til að fá þetta samþykkt, þannig að þetta tekur tíma. Við erum í ferli og verðum líklega fyrsti flugrekstraraðilinn til að taka inn þennan tækjabúnað,“ segir flugstjórinn.

Spurður hversu langan tíma það taki rekstraraðila að bregðast við segir Arnar Þór í Morgunblaðinu að það sem stoppi þetta núna sé að framleiðandi flugvélanna sé ekki búinn að setja saman prógramm og fá það samþykkt í Evrópu.

„Við vorum komin vel af stað með þetta en við gætum verið að tala um eitt og hálft ár,“ segir hann.

  • Frétt mbl.is í morgun:

Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

  • Frétt akureyri.net á föstudaginn:

Skerðing á þjónustu og flugöryggi