Fara í efni
Ferðaþjónusta

Jólagarðurinn fær BSO-húsið gefins

Mynd: Þorgeir Baldursson

Dómnefnd á vegum Akureyrarbæjar leggur til að Jólagarðurinn í Eyjafjarðarsveit fái hús BSO – Bifreiðastöðvar Oddeyrar – afhent án endurgjalds og skipulagsráð bæjarins samþykkti þá niðurstöðu nefndarinnar í gær.

Akureyrarbær auglýsti á dögunum að húsið fengist gefins en flutningur þess af lóðinni við Strandgötu yrði á ábyrgð og kostnað þess sem eignast húsið. Það þarf að vera farið úr Strandgötu eigi síðar en 15. júní næstkomandi, að öðrum kosti verður húsið rifið og því farga.

Við mat á tilboðum var horft til þess hvort húsið verði nýtt til almenningsnota (80%) og til fyrirhugaðrar staðsetningar (lóðar) (20%). Í dómnefnd voru Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Hulda Sif Hermannsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra Inga Þöll Þórgnýsdóttir, bæjarlögmaður og var niðurstaða þeirra afgerandi.

Mat dómnefndar á beiðni Jólagarðsins er svohljóðandi:

Almennur áningarstaður án endurgjalds, en einnig nýtt sem greiðasala og verslun í takt við það sem fyrir er.

Uppfyllir að vera til almenningsnota, en verður væntanlega einnig í samkeppnisrekstri.

Hugmynd höfðar samfélagslega til fjölskyldufólks með vísan til staðsetningar. Lóð til staðar.

  • Almenningsnot: 9
  • Lóð: 10
  • Einkunn: 9,2

Gefin voru stig á bilinu 1-10. Þegar horft er til almenningsnota (80%) eru gefin flest stig ef almenningur getur nýtt eða notið hússins án endurgjalds og þá er horft til þess hvert samfélagslegt gildi notkun húss er, s.s. fyrir fjölskyldufólk. Fyrirhuguð staðsetning (lóð) (20%). Gefin eru 10 stig ef umsækjandi er þegar með lóð undir húsið. Ef lóð er til staðar en talið er að hús passi ekki vel á lóð eða ef notkun uppfyllir ekki deiliskipulag eru gefin 5 stig. Ef lóð er ekki til staðar eru engin stig gefin.


Sex tilboð voru metin af dómefnd. Hinar umsóknirnar voru:

  • Kaffi BSO/Kaffi Á. Símonar (kattarkaffihús) á Akureyri

„Skemmtileg hugmynd sem höfðar samfélagslega til ákveðins hóps og fjölskyldufólks. Húsnæðið uppfyllir að vera nýtt til almenningsnota, þótt notkun sé í samkeppnisrekstri. Skortur á lóð dregur umsókn niður,“  sagði í umsögn dómnefndar. Einkunn 6,40.


  • Sumarbústaður í Hörgárdal

„Umsókn uppfyllir það ekki að vera nýtt til almenningsnota. Ekki vitað um lóð.“ Einkunn: 0.


  • Keramikverkstæði og gallerý 1, Akureyri

„Höfðar til þröngs hóps notenda, þótt gallerý geti breikkað þann hóp. Umsókn uppfyllir að hluta til að vera til almenningsnota. Vísað er til lóðar sem er skv. deiliskipulagi fyrir íbúðarhús. “ Einkunn: 6,6


  • Keramikverkstæði og gallerý 2, Akureyri

„Höfðar til þröngs hóps notenda, þótt gallerý geti breikkað þann hóp. Umsókn uppfyllir að hluta til að vera til almenningsnota. Skortur á lóð dregur umsókn niður.“ Einkunn: 5,6


  • Hvalaskoðun á Hjalteyri

„Áningarstaður fyrirtækis í samkeppnisrekstri sem tengist ekki beint að vera opið öllum án endurgjalds, til almenningsnota. Lóð til staðar.“ Einkunn: 6,8.