Eyjafjarðarsveit
Reykur í BSO húsinu en engin hætta á ferðum
08.05.2026 kl. 14:50
Engar áhyggjur, það er ekki kviknað í BSO húsinu. Slökkvilið Akureyrar er með æfingu þar í dag. Mynd: SNÆ
BSO húsið er nú fullt af reyk en ekki er þó kviknað í heldur er slökkvilið Akureyrar með æfingu þar í gangi í dag.
Slökkviliðið fékk leyfi til þess að nýta húsið til æfinga en eins og akureyri.net greindi frá í gær stendur til að rífa húsið, nema einhver óski eftir því að eiga það og sé tilbúinn að flytja það af lóðinni.
Æfing slökkviliðisins hefur engin áhrif á ástand hússins þar sem reykurinn sem notaður er í svona æfingar er sambærilegur þeim reyk sem notaður er til að skapa stemningu á skemmtistöðum.
