Eyjafjarðarsveit
Íshokkí, blak, karfa og örlög í fótboltanum
24.10.2026 kl. 06:00
Viðburðaríkur dagur fram undan á íþróttasviðinu. Tvö íshokkílið að takast á við Reykvíkinga í Laugardalnum, blaklið karla að berjast við Ísfirðinga og körfuboltakonur berjast í Breiðholtinu. Líklega verða þó flestra augu og eyru á tveimur fótboltaleikjum þar sem það ræðst hvort karlaliðið á Akureyri, Þór eða KA, þarf að bíta í súra eplið og falla niður um deild.
- Íshokkí: Fyrsta Ofurhelgin af þremur í Toppdeild karla í íshokkí hófst í gær með viðureign SA og SR í Skautahöllinni í Laugardal. Sá leikur var hin besta skemmtun þrátt fyrir að endirinn hafi ekki eins og Akureyringar óskuðu sér, tap í framlengingu. Þetta fyrirkomulag var prófað í fyrra og hefur greinilega tekist það vel að ákveðið var að halda áfram með það. Ofurhelgin felst í því að meistaraflokksliðin þrjú, SA, SR og Fjölnir mætast öll einu sinni á sama stað yfir helgina. Ofurhelgarnar verða þannig einu sinni á vetri í hverri skautahöll. SA Víkingar mæta Fjölni í dag í Skautahöllinni í Laugardal. Reykjavíkurfélögin mætast svo á morgun. Liðið sem heldur Ofurhelgina fær hvíldardag á milli, spilar á föstudegi og sunnudegi.
- Blak: Karlalið KA í blaki heldur vestur á Ísafjörð þar sem tekin verður tveggja leikja helgi gegn Vestra. Fyrri leikurinn í dag og sá seinni á morgun. KA hefur spilað þrjá leiki til þessa og aðeins unnið einn þeirra, situr núna í 6. sæti deildarinnar með þrjú stig. Vestri er hins vegar í 2. sæti deildarinnar með átta stig úr jafnmörgum leikjum.
- Fótbolti: Það ræðst um fjögurleytið í dag hvort Akureyrarliðanna í karlafótboltanum fellur úr Bestu deildinni. Fyrir viku voru KA-menn með örlögin í eigin höndum, en það snerist við í næstsíðustu umferðinni, KA tapaði og Þór vann þannig að nú eru Þórsarar með örlögin í eigin höndum.
KA tekur á móti ÍBV á sama tíma og Þór sækir FH heim í dag kl. 14. Vinni Þór heldur liðið sér uppi, en KA fellur. KA þarf að vinna sinn leik og treysta á að Þór vinni ekki sinn leik til að snúa dæminu við, að KA haldi sér uppi, en Þór falli. Þriðji möguleikinn er svo að KA geri jafntefli og þyrfti þá að treysta á tap Þórs. Það myndi duga KA til að halda sér uppi vegna mun hagstæðari markatölu en hjá Þór. Hvernig sem fer er ljóst að Akureyrarliðin munu enda í 10. og 11. sæti deildarinnar, bara spurning hvort verður hvar.
- Staðan fyrir lokaumferðina
10. sæti - Þór - 27 stig - mínus 31 í markatölu
11. sæti - KA - 26 stig - mínus 13 í markatölu
- Staðan fyrir lokaumferðina
- Körfubolti: Kvennalið Þórs í körfubolta hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum í 1. deildinni og sækir ÍR heim í Breiðholtið í fjórðu umferðinni í dag. Þór er í 4. sæti deildarinnar, en fimm efstu liðin hafa öll unnið tvo leiki. ÍR er í 8. sæti deildarinnar með einn sigur úr tveimur leikjum. Þór vann KV örugglega á heimavelli í síðustu umferð.
- Íshokkí: Kvennalið Skautafélags Akureyrar verður einnig á faraldsfæti eins og karlarnir. Lið SA sækir Íslandsmeistara SR heim í Laugardalinn í kvöld, að loknum leik Fjölnis og SA í Toppdeild karla. Aðeins er þremur leikjum lokið í deildinni. SA hefur unnið tvo leiki, en tapaði einum í framlengingu, einmitt fyrir SR.
- Blak
Unbroken-deild karla
Íþróttahúsið Torfnesi á Ísafirði kl. 13
Vestri - KA
- Fótbolti
Besta deild karla, neðri hluti, 27. umferð
KA-völlur (Greifavöllurinn, gervigras við KA-heimilið) kl. 14
KA - ÍBV
- Fótbolti
Besta deild karla, neðri hluti, 27. umferð
Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 14
FH - Þór
- Íshokkí
Toppdeild karla, Ofurhelgi
Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
Fjölnir - SA
- Körfubolti
1. deild kvenna, 4. umferð
Skógarsel í Breiðholti kl. 18
ÍR - Þór - Íshokkí
Toppdeild kvenna
Skautahöllin í Reykjavík kl. 19:45
SR - SA