Fara í efni
Ein með öllu

Gleðin er gul og blá á Akureyri í dag!

Stuðningsmenn KA réðu sér ekki fyrir kæti þegar flautað var til leikslok og skyldi engan undra. Myndir: Skapti Hallgrímsson

KA sigraði Þór 1:0 í Bestu deildinni í knattspyrnu í dag í leiknum langþráða á VÍS velli Þórs í Þorpinu – þetta var fyrsta viðureign Akureyrarliðanna í efstu deild í 24 ár.  Það var Hallgrímur Mar Steingrímsson sem gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu nokkrum mínútum fyrir leikslok eftir að brotið var á honum innan vítateigs.

Þórsarar voru með sex stig eftir fjóra fyrstu leikina en KA-menn aðeins eitt þannig að stigin þrjú eru gríðarlega mikilvæg en ekki síður gleðin sem fylgir því að sigra Þórsara! Gleðin var gul og blá í Þorpinu um sexleytið en rauðir og hvítir heimamenn hurfu súrir á braut.

Meira á eftir

Hrannar Björn Steingrímsson er ekki leikfær vegna meiðsla en stjórnaði sigursöng KA-manna eins og herforingi eftir leikinn í dag.

Hallgrímur Mar skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnunni, spyrnti knettinum í hægra hornið en Aron Birkir Stefánsson kastaði sér í hina áttina.