Fara í efni
Ein með öllu

Fyrsti samningurinn vegna nýbyggingar SAk

Sjö skóflur tilbúnar fyrir athöfnina dag. Nýbyggingin rís á svæðinu þar sem nú eru bílastæði, grasflötur og þyrlupallur, sunnan við núverandi húsnæði sjúkrahússins. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Samningur um jarðvinnu vegna byggingar nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) var undirritaður um hádegisbil, eins og akureyri.net greindi frá fyrr í dag. Það voru Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og þeir Guðmundur Viðar Gunnarsson og Hjalti Steinþórsson frá GV-Gröfum sem rituðu undir verksamning við Nýjan Landspítala ohf. (NLSH) sem sér um þær framkvæmdir allar fyrir hönd ríkisins.

Nýbyggingin verður sunnan við núverandi byggingar á lóð SAk, þar sem nú eru bílastæði og þyrlupallur, og tengd núverandi húsnæði. Þar var samningurinn undirritaður og fyrsta skóflustunga að byggingunni tekið við sama tækifæri; sjö skóflustungur svo því sé haldið til haga og sjá má á mynd í annarri frétt.  

Samningur um jarðvinnu vegna nýrrar legudeildabyggingar við Sjúkrahúsið á Akureyri. Frá vinstri: Guðjón Hauksson, forstjóri SAk og vottur að undirskrift, Guðmundur Viðar Gunnarsson frá GV-Gröfum, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hjalti Steinþórsson frá GV-Gröfum og Sigríður Inga Rúnarsdóttir hjúkrunarfræðingur á SAk, vottur að undirskrift.

Starfsmenn GV-Grafa hefjast senn handa og Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf. segir að stækkun sjúkrahússins verði NLSH verðugt verkefni, líkt og öll önnur framkvæmdaverkefni félagsins. „Nú þegar hönnun er langt komin og jarðvinna er hafin þá endurspeglar það þá framkvæmdavissu sem er fyrir hendi. Umhverfis- og öryggismálin eru alltaf mikilvægur þáttur, erfitt er að reisa byggingu í nálægð við starfandi spítala en um leið þarf að tryggja gott samráð og samstarf við íbúa í grenndinni. Samvinna SAk og NLSH mun áfram verða góð og gefandi báðum aðilum styrk á byggingartímanum framundan,“ sagði Gunnar í dag.

Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.

Legudeildabyggingin verður 13.600 fermetrar. Í henni verður komið upp aðstöðu fyrir skurðlækningadeild (36 stofur), lyflækningadeild (36 stofur) og geðdeild (12 sjúkrastofur og tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu) ásamt stoðrýmum og þá verður til staðar glæsileg nútíma dag- og göngudeild geðdeildar, að því er segir í tilkynningu frá SAk í dag.

Óendanlega mörg tækifæri

Ekki eru nema 18 dagar síðan Guðjón Hauksson settist í stól forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri þannig að hann þurfti ekki að bíða lengi eftir þessum tímamótum. „Ég vil, af heilum hug, þakka öllu því fólki sem hefur í gegnum tíðina lagt sitt lóð á vogarskálarnar við að þetta verkefni sé nú að verða að veruleika. Ekki aðeins er þörfin brýn, heldur eru tækifærin sem felast í nýbyggingunni óendanlega mörg – það er sannarlega heilmikið tilhlökkunarefni að fá tækifæri til að vera þátttakandi í að nýta þau,“ sagði Guðjón í dag. „Ég hef fulla trú á því að nýbyggingin muni nýtast vel í starfsemi sjúkrahússins, bæta starfsaðstæður til muna – en fyrst og fremst gefur nýbyggingin okkur kost á því að sinna enn betur okkar meginhlutverki sem er að veita fólki sem á því þarf að halda framúrskarandi heilbrigðisþjónustu.“

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf. (NLSH) stýrði athöfninni í dag.