Fara í efni
Ein með öllu

Fyrsta skóflustunga að nýbyggingu SAk

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Fyrsta skóflustungan að nýbyggingu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) var tekin eftir hádegi í dag og þá var einnig undirritaður samningur við GV gröfur á Akureyri um jarðvinnu á svæðinu.

Í nýju byggingunni, sem verður sunnan núverandi húsakynna SAk verða legudeildir skurðlækninga, lyflækninga og geðlækninga. Auk þess verða í húsinu dag- og göngudeildir geðdeildar.

Framkvæmdum á að mesta að vera lokið 2030 og byggingin tekin í notkun 2031.

Sjömenningarnir sem tóku skóflustungu með tilþrifum eru, frá vinstri: Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri, Guðmunda Birna Kristjánsdóttir sjúkraliði á lyflækningadeild SAk, Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Guðjón Hauksson forstjóri SAk, Valdís Eyja Pálsdóttir, formaður Geðverndarfélags Akureyrar og Árni Jóhannesson geðlæknir á SAk.

Nánar síðar í dag