Fara í efni
Ein með öllu

Ein með öllu – hvað er á dagskrá í dag?

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu nær hámarki. Hér fylgir yfirlit yfir dagskrána á hátíðinni og aðra viðburði í bænum.

DAGSKRÁIN Í DAG, SUNNUDAG

Kjarnaskógur

  • 13:00 - Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi verður haldinn á Birkivelli.
    Íþróttaálfurinn og Daníel töframaður munu skemmta gestum á Kirsuberjaflötinni.
    Sveppafræðsla með Guðríði Gyðu.
    Hægt verður að poppa popp yfir varðeldi og foreldrar geta gætt sér á ketilkaffi í leiðinni.
    Spari Spari tónleikar á Birkivelli þar sem Birkibandið kemur fram.
    Ísbúð Akureyrar mæta með ísvagn á svæðið og Nettó býður uppá ávexti handa öllum.

Ráðhústorg

  • 13:00 - Markaðsstemning og matarvagnar.

Bílaklúbbur Akureyrar

Bílaklúbbur Akureyrar heldur 5. og 6. umferð Íslandsmótsins í áttungsmílu þann 2. og 3. ágúst 2025. Keppt verður á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar.

  • 10:00 - Tímatökur hefjast
  • 11:45 - Tímatökum líkur
  • 14:00 - Keppni hefst 

Langahlíð 10 - heimatónleikar

  • 16:00 - Jokka og Ívar flytja nokkur vel valin lög og fá til sín góða gesti. Gestum boðið að taka með garðstól og góða skapið.

Akureyrarvöllur

  • 12:00-23:30 - Tvö tívolí á Akureyrarvelli, tvær mismunandi miðasölur.
  • 19:30 - Sparitónleikar Einnar með öllu 2025.
    Stútfull dagskrá með glæsilegu tónlistarfólki sem endar á glæsilegri flugeldasýningu frá Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri. „Kynnar kvöldsins eru drottningarnar Kata Vignis og DJ Lilja!“ segir í tilkynningu.
    Fram koma: Herra Hnetusmjör, Aron Can, Friðrik Dór, Saint Pete, Kristmundur Axel, Skandall, Tinna Óðins, Rúnar Eff og Ágúst Þór.
    Matarvagnar verða á svæðinu.


Sjallinn

  • 23:45 - Herra Hnetusmjör, Friðrik Dór, Aron Can, Kristmundur Axel og Saint Pete!

 

Sparitónleikarnir eru lokapartí Einnar með öllu, en í ár verða þeir á Akureyrarvelli - ekki á Samkomuhúsflötinni eins og áður. Mynd: Hilmar Friðjónsson


Opnunartími safna í dag:

  • Listasafnið á Akureyri - 10-17
  • Safnasafnið - 10-17
  • Minjasafnið - 11-17
    • Gamli bærinn í Laufási - 11-17
    • Nonnahús - 11-17
    • Leikfangasafnið í Friðbjarnarhúsi - 11-17
    • Iðnaðarsafnið - 11-17
    • Davíðshús - 13-17 (leiðsögn kl. 16.00)
    • Smámunasafnið - 13-17
  • Flóra - Menningarhús í Sigurhæðum - 9-17
  • Flugsafn Íslands - 11-17
  • Mótorhjólasafn Íslands - 13-17
  • Ævintýragarðurinn í Oddeyrargötu 17 - 10-20

Yfirstandandi listasýningar: