Fara í efni
Ein með öllu

Brené Brown skoðar 87 tilfinningar og upplifanir

AF BÓKUM – 64

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Aija Burdikova_ _ _

Atlas of the Heart: Mapping Meaningful Connection and the Language of Human Experience, eftir Brené Brown

Brené Brown er rannsakandi og sagnakona sem hefur eytt síðustu tveimur áratugum í að rannsaka hugrekki, berskjöldun (e. vulnerability), skömm og samkennd. Ég hafði heyrt um þennan höfund og mig langaði að prófa að lesa bækur eftir hana. Sú fyrsta sem varð fyrir valinu var Atlas of the Heart.

Í bókinni skoðar Brown áttatíu og sjö tilfinningar og upplifanir sem hjálpa okkur að skilja hvað það þýðir að vera manneskja.

Þegar ég byrjaði að lesa bókina fór ég að efast um hvort þetta væri bók sem mig raunverulega langaði til að lesa, þar sem ég taldi mig þekkja tilfinningar nokkuð vel. En bókin kennir manni margt, bæði um orðaval og skilgreiningu tilfinninga, sem skiptir miklu máli. Hér eru nokkrar lexíur sem mér fannst sérstaklega athyglisverðar í bókinni:

  • Berskjöldun er það fyrsta sem við leitum eftir hjá öðrum, en það síðasta sem við viljum sýna sjálf.
  • Fullkomnunarárátta er mjög skaðleg fyrir okkur; hún drepur forvitni með því að segja okkur að við verðum að vita allt – annars gætum við litið illa út. Hún fær okkur til að trúa því að mistök séu persónulegir gallar, og þess vegna annað hvort forðumst við að prófa nýja hluti eða eigum erfitt með að jafna okkur þegar okkur mistekst.
  • Niðurlæging er eitt það versta sem hægt er að gera annarri manneskju. Rannsóknir á skotárásum í skólum í Bandaríkjunum hafa sýnt að flestir árásarmenn höfðu upplifað þessa tilfinningu. Á tímum samfélagsmiðla er niðurlæging enn erfiðari viðureignar, þar sem miklu fleiri verða vitni að henni.
  • Reiði hylur oft tilfinningar sem erfitt er að nefna eða takast á við. Hún er merki um að við þurfum að staldra við og skoða málin nánar.

Eftir lestur Atlas of the Heart las ég einnig Rising Strong, sem mér fannst líka mjög góð. Ég hlakka til að lesa fleiri bækur eftir Brené Brown, svo sem Daring Greatly: How the Courage to Be Vulnerable Transforms the Way We Live, Love, Parent, and Lead og The Gifts of Imperfection: Let Go of Who You Think You’re Supposed to Be and Embrace Who You Are.