Fara í efni
Dvalarheimilin

Viðræður: Framsókn inn fyrir Miðflokk

Meirihlutasvipur? Framsóknarkonan Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins horfast kankvísar í augu skömmu áður en fyrstu tölur voru birtar í gærkvöldi. Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-lista situr á milli þeirra. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og L-lista eru byrjaðir að ræða saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar. Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans greindi frá þessu í viðtali við Kristján Kristjánsson í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni.

Þrír bæjarfulltrúar L-listans og tveir sjálfstæðismenn mynduðu sex manna meirihluta á nýliðnu kjörtímabili ásamt einum bæjarfulltrúa Miðflokks. Sá meirihluti féll í gær þar sem L-istinn missti einn bæjarfulltrúa þótt hann fengi örlítið meira fylgi nú en fyrir fjórum árum – 19,3% nú en 19% þá.

Öll þrjú framboðin, Sjálfstæðisflokkur (19,4%), L-listi (19,3%) og Framsókn (15,1%) fengu tvo bæjarfulltrúa núna og gætu því myndað sex manna meirihluta. Nái flokkarnir saman verða bæjarfulltrúar meirihlutans Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Heimir Örn Árnason fyrir Sjálfstæðisflokk, Óðinn Svan Óðinsson og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir fyrir L-lista og fyrir Framsókn þau Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson.

L-listinn hefur verið í meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar undanfarin 16 ár, allt frá kosingunum 2010 þegar framboðið fékk hreinan meirihluta – sex bæjarfulltrúa. Það hafði engu stjórnmálaafli tekist í sögu Akureyrar og hefur ekki gerst síðan. Framsókn var síðasta í meirihluta kjörtímabilið 2018 til 2022 (ásamt L-lista og Samfylkingu) og Sjálfstæðisflokkurinn var í meirihluta á nýliðnu kjörtímabili sem fyrr segir en þar áður síðast kjörtímabilið 2006 til 2010.