Þriggja marka sveifla í sigri SA Víkinga
SA Víkingar unnu Fjölni í spennandi baráttuleik í Toppdeild karla í íshokkí sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri í dag. Fjölnismenn leiddu með tveimur mörkum fyrir síðasta leikhlutann, en heimamenn kláruðu leikinn með þremur mörkum á viðburðaríkum kafla í lokaleikhlutanum. Lokatölur urðu 4-3 og eru SA Víkingar á toppi Toppdeildarinnar.
Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrsta leikhlutanum, en Fjölnismenn þó líklegri á köflum, sóttu stíft að marki þegar þeir spiluðu einum fleiri nánast í fjórar mínútur samfleytt, en Róbert Steingrímsson stóð vel fyrir sínu í markinu.
Róbert kom þó ekki vörnum við á annarri mínútu annars leikhluta þegar Fjölnismenn nýttu sér liðsmun eftir refsingu á lið SA. Annar leikhluti var um það bil hálfnaður þegar varnir Fjölnismanna brustu loksins og Heiðar Gauti Jóhannsson jafnaði í 1-1. Aftur náðu Fjölnismenn forystunni þegar langt var liðið á annan leikhlutann og bættu svo við þriðja markinu þegar 13 sekúndur voru eftir af leikhlutanum eftir mistök upp við mark SA.
Leikar æstust heldur í þriðja leikhlutanum, mistökum fjölgaði og refsingum sömuleiðis. Á tæpum þriggja mínútna kafla nýttu SA Víkingar sér það í þrígang að vera einum og tveimur fleiri eftir refsingar á leikmenn Fjölnis. Gunnar Arason minnkaði muninn í eitt mark og jafnaði í 3-3 innan við mínútu síðar. Í bæði skiptin voru SA Víkingar tveimur fleiri. Daniil Fursa skoraði fjórða mark SA skömmu síðar, enn og aftur þegar heimamenn voru fleiri á svellinu.
Lokakaflinn hélt áhorfendum á sætisbrúninni, Fjölnismenn reyndu ákaft að jafna leikinn og fengu til þess gullið tækifæri þegar þeir voru tveimur fleiri á ís í dágóða stund, sóttu ákaft og fengu góð færi, en SA Víkingar stóðu af sér áhlaupið og lönduðu 4-3 sigri að lokum.
SA - Fjölnir 4-3 (0-0, 1-3, 3-0)
SA Víkingar eru áfram á toppi deildarinnar, nú með 19 stig úr níu leikjum, en SR er með 14 stig úr sjö leikjum og Fjölnir 12 stig úr átta leikjum.
Helstu tölur úr leiknum:
SA
Mörk/stoðsendingar: Gunnar Arason 2/1, Heiðar Gauti Jóhannsson 1/0, Daniil Fursa 1/2, Jóhann Már Leifsson 0/2 Birkir Rafn Einisson 0/1, Sigurður Þorsteinsson 0/1, Arnar Kristjánsson 0/1,
Varin skot: Róbert Steingrímsson 25 (8, 8, 9) af 28 (89,29%).
Refsingar: 10 mínútur.
Fjölnir
Mörk/stoðsendingar: Hektor Hrólfsson 1/1, Viggó Hlynsson 1/0, Kristján Jóhannsson 1/0, Hilmar Sverrisson 0/1, Jere Koikkalainen 0/1, Viktor Svavarsson 0/1,
Varin skot: Þórir Aspar 31 (5, 19, 7) af 35 (88,57%).
Refsingar: 20 mínútur.
Næst:
- Laugardagur 12. desember
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - SR