Fara í efni
Dvalarheimilin

Einstaklega óviðeigandi – Gjöfinni verði skilað

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum gagnrýna mjög að Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) hafi þegið páskaegg að gjöf handa starfsfólki og sjúklingum frá Smáríkinu, netverslun með áfengi sem nýlega opnaði starfsstöð á Akureyri. Þá er harðlega gagnrýnd „einstaklega óviðeigandi“ færsla á vef stofnunarinnar þar sem Smáríkinu er þakkað fyrir „rausnarlega gjöf“ og fyrir „hlýhug“. Samtökin fara fram á að gjöfinni verði skilað hið fyrsta.

Formaður samtakanna, Árni Guðmundsson, sendi Erlu Björnsdóttur, settum forstjóra SAk, bréf í morgun þar sem hann segir meðal annars:

  • Ítrekað hafi komið fram í fjölmiðlum og opinberri umræðu að Smáríkið sæti ákæru frá lögregluyfirvöldum fyrir ólöglega áfengissölu.
  • Samtökunum hafi borist allmargar ábendingar um að fyrirtækið selji áfengi til barna og ungmenna og það þverbrjóti lög um áfengisauglýsingar.
  • Það sé alvarlegt mál þegar opinber heilbrigðisstofnun taki við gjöf frá fyrirtæki sem starfi af einbeittum brotavilja og gangi gegn öllum markmiðum heilbrigðiskerfisins.
  • Enn alvarlegra sé að slíkt sé kynnt opinberlega með jákvæðum hætti, þar sem fyrirtækinu sé veitt viðurkenning og jákvæð ímynd.
  • Þegar opinber stofnun eins og Sjúkrahúsið á Akureyri, taki við gjöfum frá aðilum sem starfi á skjön við lög og öll markmið heilbrigðiskerfisins, og birti jafnframt opinbera þakkarfærslu, sé það ígildi þess að gefa út „heilbrigðisvottorð“ og sé „hvítþvottur“ á brotastarfsemi.
  • Það sé einstaklega óviðeigandi og eiginlega hneyksli að heilbrigðisstofnun – sem eigi að standa vörð um heilsu, forvarnir og sýna samfélagslega ábyrgð – taki þátt í slíku.
  • Ábyrgðin sem hvíli á stjórnendum SAk sé mikil og afleitt að stofnunin standi ekki undir henni eins og gjörningurinn beri augljóslega vott um.
  • Farið er fram á að sjúkrahúsið skili gjöfinni til gefanda hið fyrsta.

Afrit af bréfinu var sent öðrum stjórnendum Sjúkrahússins á Akureyri, heilbrigðisráðherra, embætti Landlæknis, Umboðsmanni barna, formanni Krabbameinsfélags Íslands,  Heimili og skóla, Barnaheillum og Bindindissamtaökunum IOGT, svo einhverjir séu nefndir. 

Foreldrasamtökin sendu akureyri.net afrit af bréfinu og það má sjá í heild hér fyrir neðan. Í gær birtist frétt um gjöf Smáríkisins þar sem kom fram að fyrirtækið hefði einnig tilkynnt að það myndi gefa fleira „framlínustarfsfólki“ páskaegg, starfsmönnum slökkviliðsins, björgunarsveitafólki og fleirum.


Bréf Árna Guðmundssonar formanns, fyrir hönd Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, er svohljóðandi:

Hafnarfirði 2. apríl 2026

Til stjórnenda Sjúkrahúss Akureyrar,

Erla Björnsdóttir settur framkvæmdastjóri 

Okkur hjá Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum hafa borist margar ábendingar um einstaklega óviðeigandi færslu á vef SAK.

Við sem störfum að forvarnarmálum og látum okkur varða vernd barna og ungmenna, forvarnir, lýðheilsu og ábyrgð í opinberri umræðu, viljum koma á framfæri óánægju vegna nýlegrar og einstaklega óviðeigandi færslu ykkar á veraldarvefnum þar sem þið þakkið fyrir „rausnarlega gjöf frá Smáríkinu“ sem og hrósið fyrirtækinu fyrir „hlýhug“ og „óskið velfarnaðar“. Eins og ítrekað hefur komið fram í fjölmiðlum og opinberri umræðu sætir fyrirtækið ákæru frá lögregluyfirvöldum fyrir ólöglega áfengissölu, máli sem er fyrir dómstólum. Fyrirtæki sem okkur í samtökunum hafa borist allmargar ábendingar um að selji áfengi til barna og ungmenna. Fyrirtæki sem þverbrýtur lög um áfengisauglýsingar.

Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítala. Því verður að gera kröfur til þess að stjórnendur sjúkrahússins fylgist með opinberri umræðu og viti að Smáríkið starfi á skjön við lög skv. áliti og ákæru lögreglu.

Það er alvarlegt mál þegar opinber heilbrigðisstofnun tekur við gjöf frá fyrirtæki sem starfar af einbeittum brotavilja og gengur gegn öllum markmiðum heilbrigðiskerfisins. Fyrirtæki sem er fyrir dómstólum vegna ólöglegrar starfsemi að mati lögreglu. Enn alvarlegra er að slíkt sé kynnt opinberlega með jákvæðum hætti, þar sem fyrirtækinu er veitt viðurkenning og jákvæð ímynd. Spurningin er því einfaldlega sú hvort það gildi engar siðareglur um starfsemi SAK eða hvort þær eru hreinlega virtar að vettugi?

Reynsla og fjölmargar rannsóknir, umfjöllun þar um, m.a. á vegum FRÆ og Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, fjölda heilbrigðisstétta o.fl., hafa ítrekað sýnt fram á að brotastarfsemi á sviði áfengis, hvort sem um ræðir ólöglega sölu eða markaðssetningu, hefur raunverulegar og skaðlegar afleiðingar m.a. á heilbrigðiskerfið. En ekki bara á heilbrigðiskerfið. Hún normalíserar neyslu og grefur undan forvörnum sem miða að því að vernda börn og ungmenni. Hún eykur tíðni fíknisjúkdómam.m. Slík þróun vinnur beint gegn þeirri stefnu sem íslenskt samfélag hefur byggt upp áratugum saman á sviði lýðheilsu og forvarna. Slík þróun vinnur beint gegn lýðheilsustefnu Íslands til ársins 2030.

Læknadagar stóðu fyrir málþingi fyrir almenning um áfengi og forvarnir 21. janúar 2026. Málþingið Skál fyrir betri heilsu! – Áfengi í alfaraleið – Samtal við samfélagið var haldið í Silfurbergi í Hörpu miðvikudagskvöldið 21. janúar 2026. Tilgangurinn með málþinginu var að upplýsa almenning um þá miklu normalíseringu áfengisneyslu sem orðin er og ná fram samtali um hvernig snúa verði þeirri þróun við svo lýðheilsa eflist og fjármagn sparist.

https://www.lis.is/is/um-li/frettakerfi/laeknadagar-2026-afengi-i-alfaraleid

Þegar opinber stofnun eins og Sjúkrahúsið á Akureyri, SAK, tekur við gjöfum frá aðilum sem starfa á skjön við lög og þessi markmið og birtir jafnframt opinbera þakkarfærslu er það ígildi þess að gefa út „heilbrigðisvottorð“ og er „hvítþvottur“ á brotastarfsemi. Það er einstaklega óviðeigandi og eiginlega hneyksli að heilbrigðisstofnun – sem á að standa vörð um heilsu, forvarnir og sýna samfélagslega ábyrgð – taki þátt í slíku.

Ábyrgðin sem hvílir á ykkur er mikil og afleitt að stofnunin standi ekki undir henni eins og þessi gjörningur ber augljóslega vott um. Farið er fram á að sjúkrahúsið skili gjöfinni til gefanda hið fyrsta.

Virðingarfyllst,

Fyrir hönd Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum
Árni Guðmundsson formaður