„Erum í raun að virkja djúpsteikingarpottinn“
Á hverjum degi fellur til mikið magn af notaðri matarolíu frá veitingastöðum og eldhúsum landsins. Þessi olía hefur verið notuð til að djúpsteikja fisk, kjúkling, franskar, kleinur, ástarpunga og annað góðgæti, en þegar hlutverki hennar í eldhúsinu lýkur endar hún yfirleitt sem úrgangur.
Hjá Orkey á Akureyri fær olían hins vegar nýtt hlutverk og félagið undirbýr nú stækkun og sókn með lífdísil úr íslenskri úrgangsolíu
- Orkey er eitt af sjö nýsköpunarverkefnum sem DriftEA valdi í svokallaðan Hlunn og fá þau verkefni heildstæða aðstöðu, ráðgjöf og þjálfara hjá Drift EA. Auk þessa voru fjögur önnur öflug samfélagsleg verkefni valin í Drift EA sem fá ráðgjöf og aðstöðu.
- Akureyri.net mun kynna umrædd verkefni á næstunni. Þegar hefur verið fjallað um Unni Verkbókhald, en frumkvöðlarnir á bak við það kalla Unni „besta vin iðnaðarmannsins“!
- DriftEA er miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar sem tók til starfa á Akureyri á síðasta ári.
- Síðasta sumar fengu 13 verkefni inngöngu í nýsköpunarhraðal sem nefnist Slipptaka hjá DriftEA. Næsta skrefið að Slipptöku lokinni er Hlunnurinn incubator sem er að sænskri fyrirmynd en DriftEA er í samstarfi við sænska frumkvöðlasetrið Sting.
„Við söfnum úrgangs matarolíu, hreinsum hana og umbreytum henni með efnaferli í lífdísil sem getur komið í stað hefðbundinnar dísilolíu á stærri vélar og tæki,“ segir Skúli Gunnar Árnason, framkvæmdastjóri Orkeyjar.
Lífdísill er bæði umhverfisvænt og kolefnishlutlaust eldsneyti sem getur komið í staðinn fyrir dísilolíu á stærri vélar og tæki. Með notkun á lífdísil í stað jarðefnaeldsneyti lækkar kolefnissporið um 85-90%.
„Því má segja að við séum í raun orkuskiptafyrirtæki sem er að reyna að virkja djúpsteikingarpottinn,“ segir Skúli Gunnar.
Úr úrgangi í lykillausn orkuskiptanna
Orkey var stofnað árið 2007 með það að markmiði að þróa og framleiða umhverfisvænt eldsneyti. Í gegnum árin hefur náðst talsverður árangur í orkuskiptum með lífdísli frá Orkey þó framleiðslumagnið hafi verið takmarkað. Þó fyrirtækið hafi verið starfandi um árabil segir Skúli að síðustu ár hafi markað nýtt upphaf.
„Upphaflega kynntist þetta teymi fyrir tæpum 20 árum hjá verkfræðistofunni Mannviti, sem heitir í dag Cowi, þar sem teymismeðlimir unnu að hönnun verksmiðjunnar. Það er því gríðarlega spenna í loftinu fyrir því að taka Orkey á næsta stig og að verkefnið sé komið aftur á okkar borð,“ segir Skúli.

Orkey umbreytir úrgangs matarolíu (vinstra megin) yfir í umhverfisvænt eldsneyti (hægra megin).
Fyrir um þremur árum var fyrirtækið keypt af Gefn ehf., en framkvæmdastjóri Gefnar, Ásgeir Ívarsson, er jafnframt upphaflegur hönnuður verksmiðjunnar. Með nýju eignarhaldi, breyttri stefnu og sterku teymi sérfræðinga hafi nýr kraftur færst í starfsemina. Teymið samanstendur af efna-, véla- og rafmagnsverkfræðingum með áratuga reynslu úr nýsköpun og vöruþróun hjá fyrirtækjum á borð við CRI, Siemens Turbo, COWI, Carbfix og EFLA.
„Í dag er Orkey eina félagið sem framleiðir fljótandi eldsneyti á Íslandi, auk þess að vera það eina sem hlotið hefur alþjóðlega kolefnis- og sjálfbærnivottun á framleiðslu sína.“
Enginn dagur eins
Aðspurður hvað hafi komið honum mest á óvart í frumkvöðlaferðalaginu segir Skúli það vera hversu mörg hlutverk fylgi því að leiða sprotafyrirtæki.
„Án efa allur sá fjöldi bolta sem þarf að halda á lofti sem frumkvöðull og allt það nýja sem ég hef þurft að læra. Það er enginn dagur er eins.“
Hann segir daglegt starf geta falið í sér allt frá styrkjaumsóknum og bókhaldi yfir í hráefnasöfnun, framleiðslu, sölu, viðhald, samskipti við yfirvöld og þróun á nýjum vörum. Að komast í prógramm hjá Drift EA hafi því komið á hárréttum tíma.
„Við sóttumst eftir því að komast úr Slipptöku í Hlunninn hjá Drift EA því við erum með metnaðarfullar áætlanir fyrir Orkey sem þurfa aðkomu fleiri aðila til að gera að veruleika. Sú þjálfun, leiðsögn og tengingar sem Drift býður uppá er einmitt það sem Orkey þurfti á að halda, einmitt á þessum tímamótum, og við teljum okkur mjög heppin að hafa verið valin inn. Það samstarf hefur reynst okkur mjög dýrmætt og er stór þáttur í því að byggja undir og koma Orkey á næsta stig.

Framleiðsla Orkeyjar er staðsett á Akureyri og var bæði hönnuð og smíðuð í bæjarfélaginu.
Þurfa að tífalda framleiðslu til að anna eftirspurn
Framundan eru stór skref hjá Orkey, þar sem næsta verkefni fyrirtækisins er stækkun verksmiðjunnar til að mæta aukinni eftirspurn.
„Við sjáum fram á að eftirspurn eftir lífdísli á Íslandi muni margfaldast á næstu árum og til að geta annað henni þurfum við að tífalda framleiðslugetuna okkar,“ segir Skúli.
Til að gera þá uppbyggingu að veruleika undirbýr fyrirtækið nú fjárfestakynningar með það að markmiði að finna réttu samstarfsaðilana fyrir næsta vaxtarskeið.
Að mati Skúla mun lífdísill gegna lykilhlutverki í orkuskiptum Íslands á næstu árum, sérstaklega þar sem aðrar lausnir eru enn í þróun.
„Rafvæðing er ekki alltaf raunhæf og rafeldsneytislausnir eru ekki enn alveg tilbúnar til notkunar í stórum stíl. En lífdísil er hægt að setja á tankinn strax í dag,“ segir hann og bendir á að Orkey ætli sér að vera áfram í fararbroddi orkuskipta á Íslandi. Fyrirtækið hyggst jafnframt halda áfram að þróa nýjar lausnir samhliða uppbyggingunni.
„Við erum með nýja vöru í þróun sem kemur á markað í haust og hlökkum mikið til að segja meira frá henni í sumar. Markmiðið er skýrt, að halda áfram að þróa lausnir sem flýta fyrir orkuskiptum og nýta betur þær auðlindir sem þegar eru til staðar.“
