Fara í efni
DNG

Útisvæði, vandaður arkitektúr, mannlíf

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Tilkynnt var í gær um opna framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis sem Akureyrarbær efnir til í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Í keppninni er óskað eftir hugmyndum um framtíðarþróun svæðisins, þeim á að skila síðari hluta aprílmánaðar í vor og niðurstaða dómnefndar á að liggja fyrir í lok maí.

„Samkeppnissvæðið er fyrrverandi íþróttaleikvangur Akureyrar og liggur rétt norðan við miðbæ Akureyrar í nálægð við höfn, verslunarkjarna Glerársvæðis og býður upp á tækifæri til áhugaverðrar þróunar sem styrkt gæti miðbæjarsvæði Akureyrar með því að tengja saman suður og norðurhluta þess,“ seg á vef Akureyrarbæjar.

Vilja fá sem besta heildarlausn

„Meginmarkmið samkeppninnar er að ná fram sem bestri heildarlausn sem yrði forsenda fyrir nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Markmið er að svæðið styrki og tengi miðbæ Akureyrar við önnur svæði,“ segir í tilkynningu á vef bæjarins. „Óskað er eftir hugmyndum að framtíðarþróun svæðisins sem einkennist að virðingu við staðareinkenni, metnaðarfullum arkitektúr bygginga og útisvæða, bíður upp á fjölbreytt mannlíf og styður við náttúrugæði svæðisins. Leitað er eftir raunhæfum tillögum sem gefa svæðinu fallegt, gróskumikið og spennandi heildaryfirbragð í sátt við umhverfi og sögu Akureyrarbæjar.“

Áherslur dómnefndar

Í tilkynningunni eru eftirtalin atriði birt, sem áherslur dómnefndar:

  • Heildaryfirbragð, notagildi, vandaður arkitektúr bygginga og útisvæði sem taka mið af staðaranda og veðurfarsskilyrðum.
  • Uppbygging miðsvæðis sem styrki núverandi innviði bæjarins og tengir hverfahluta.
  • Aðgengis-, umferðar- og öryggismál leyst og tengd stígakerfi Akureyrarbæjar.
  • Nýti sögu Akureyrarvallar og kennileiti svæðisins s.s. klappir og gróður.
  • Umhverfissjónarmið og sjálfbærni við hönnun og efnisval.
  • Vinni með og dragi úr áhrifum Glerárgötu (þjóðvegur 1).

Fimm eru í dómefnd. Tilnefndar af Arkitektafélagi Íslands þær Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt FAÍ, og Fríða Björg Eðvarðsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA. Tilnefnd af Akureyrarbæ eru Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar og bæjarfulltrúi L-lista, Hlynur Jóhannsson, bæjarfulltrúi M-lista og Sindri Kristjánsson, varabæjarfulltrúi S-lista.

  • Fyrstu verðlaun í keppninni eru 6 milljónir króna, önnur verðlaun eru 3 milljónir kr. og 1 milljón kr. er í þriðju verðlaun.