Fara í efni
Covid-19

Upphitun í Hamri og Boganum – Sér inngangur KA-fólks

Myndir: Ármann Hinrik

Leikur Þórs og KA í Bestu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu hefst klukkan 16.00 í dag á VÍS-vellinum, gervigrasvelli Þórs á Ásnum.

Þórsarar hafa beðið akureyri.net um að koma því á framfæri við stuðningsmenn KA að ætlast er til þess að þeir gangi inn á vallarsvæðið um hlið á suðaustur horni svæðisins; við sparkvöllinn á lóð Glerárskóla. Hentugast sé að leggja bílum við skólann og ganga þaðan.

Stuðningsmenn félaganna ætla að hittast tímanlega til þess að koma sér í gírinn - „hita upp“ fyrir leik.

Félagsheimili Þórs, Hamar, verður opnað fyrir stuðningsmönnum félagsins kl. 13.00, tónlistarmaðurinn Rúnar Eff mætir með gítarinn og spilar og syngur á milli kl. 14.00 og 15.00 og flautað verður til leiks kl. 16.00.

Stuðningsmenn KA munu koma saman í Boganum klukkan 14.30. Þaðan er best að fara eftir göngustíg austan við völlinn, aftan við áhorfendastúkuna að áðurnefndum inngangi á suðausturhorni vallarsvæðisins.

Alls eru seldir 1900 miðar á leikinn. Upphaflega voru þeir 1500, Þór seldi 1100 og KA fékk 400 miða. Vegna mikillar eftirspurnar bættu Þórsarar svo 300 miðum við í gær.

Flestir stuðningsmenn KA verða fyrir aftan syðra mark vallarins þar sem útbúin hafa verið stæði en um 50 þeirra fá sæti í stúkunni.

Leiðin sem stuðningsmönnum er bent á að sé best til þess að komast á sinn stað á vellinum í dag.

Útbúin hafa verið stæða fyrir aftan syðra markið – markið nær á myndinni, þar sem flestir stuðningsmenn KA verði í dag.