Fara í efni
Covid-19

Strætóferðir milli Hofs og Hríseyjarferjunnar

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Nú er hægt að ferðast með almenningssamgöngum frá Akureyri og áfram til Hríseyjar með tengingu milli strætóleiðar 78 og Hríseyjarferjunnar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar og „auðveldar bæði íbúum og gestum að komast til og frá eyjunni án þess að vera á eigin bíl,“ eins og segir þar.

Það er strætisvagninn sem ekur á milli Akureyrar og Siglufjarðar sem sinnir þessu hlutverki.

Sem stendur fer strætó sex daga í viku á milli Akureyrar og Árskógssands, þar sem ferjan leggst að bryggju. Hann ekur þrisvar á dag alla virka daga og einu sinni á sunnudögum. „Tengingarnar henta vel fyrir ferðamenn sem vilja heimsækja Hrísey og njóta þess sem eyjan hefur upp á að bjóða,“ segir á vef Akureyrarbæjar. „Hrísey er einstakur áfangastaður með fallegri náttúru, fjölbreyttu fuglalífi og rólegu andrúmslofti. Það er vel þess virði að kíkja í heimsókn og njóta eyjunnar.“

  • Strætó fer frá Hofi alla virka daga kl. 8:22, 12:22 og 16:42. Á sunnudögum ekur hann einnig frá Hofi kl. 16:42. Gert er ráð fyrir að strætóferðin taki hálftíma og ferjan siglir út í eyju rúmum hálftíma eftir að komið er á Árskógssand.
  • Þessa sömu sex daga vikunnar geta þeir farþegar sem sigla með ferjunni úr Hrísey kl. 15:00 tekið strætó á Árskógssandi og verið komnir að menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 16:04 skv. töflunni hér að neðan.

Unnið er að frekari útfærslum á tengingum almenningssamgangna með það að markmiði að þær nýtist íbúum Hríseyjar enn betur, að því er fram kemur á vef bæjarins.

Mynd af vef Akureyrarbæjar