Fara í efni
Covid-19

Íshokkí: SA Jötnar meistarar U22 liða

Jötnar með alvöru klefamynd að leik loknum í gær.

Jötnar, U22-lið Skautafélags Akureyrar í íshokkí karla, tryggði sér í gærkvöld Íslandsmeistaratitil U22 liða með sigri á Húnum, U22 liði Fjölnis, 5-2, í Egilshöllinni. Liðin mættust aftur í morgun og aftur höfðu Jötnar sigur, 5-4 í þetta skiptið í spennandi leik.

Jötnar og Húnar hófu keppnistímabilið sem hluti af fimm liða forkeppni fyrir Toppdeild karla, ásamt meistaraflokksliðunum þremur, SA Víkingum, Fjölni og SR. Leikir forkeppninnar skiptu ekki máli þegar í aðalkeppnina var komið, meistaraflokksliðin fóru í A-hluta Toppdeildar og börðust um Íslandsmeistaratitil karla.

Jötnar með bikarinn að leik loknum í gær. Myndin er fengin af Facebook-síðu Rúnars Freys Rúnarssonar, annars af þjálfurum liðsins.

U22 liðin, Jötnar og Húnar, hafa mæst reglulega á tveggja leikja helgum í Skautahöllinni á Akureyri og skautasvelli Egilshallarinnar. Upphaflega stóð til að Skautafélag Reykjavíkur yrði einnig með U22 lið en úr því varð ekki. Það voru því aðeins liðin frá SA og Fjölni sem mættust í þessum hluta mótsins. Tilteknir leikmenn sem skráðir voru fyrir mótið hafa svo verið löglegir með báðum liðunum, meistaraflokki og U22, eftir reglum sem settar voru. Viðureignir liðanna verða 12 þegar upp er staðið og sigur Jötna í gær var sá sjöundi í fyrstu níu leikjunum.

Jötnar höfðu unnið sex af fyrstu sjö leikjunum og fengu tækifæri til að tryggja titilinn á heimavelli síðastliðinn sunnudag, en nýttu það tækifæri illa, töpuðu þeim leik sannfærandi 1-5. Þeir þurftu þó ekki að hafa miklar áhyggjur því til að vinna titilinn þurfti sigur í einum leik af síðustu fjórum.

Leikir U22 liðanna í vetur.

11. og 12. október

  • Húnar - Jötnar 5-2
    Mörk/stoðsendingar: Bjarki Jóhannsson 1/0, Askur Reynisson 1/0, Elvar Skúlason 0/1, Aron Ingason 0/1, Alex Ingason 0/1
    Varin skot: Björn Ingólfsson 17 af 21 (80,95%), Guðmundur Stefánsson 20 af 21 (95,24%).
    Leikskýrslan
  • Húnar - Jötnar 7-8
    Mörk/stoðsendingar: Askur Reynisson 4/0, Bjarki Jóhannsson 2/2, Bjarmi Kristjánsson 1/0, Mikael Eiríksson 1/0, Alex Ingason 0/2, Aron Ingason 0/1, Björn Jónsson 0/1, Hreiðar Ásgeirsson 0/1
    Varin skot: Guðmundur Stefánsson 32 af 39 (82,05%9
    Leikskýrslan

22. og 23. nóvember

  • Jötnar - Húnar 5-4
    Mörk/stoðsendingar: Alex Ingason 2/0, Robbe Delport 2/0, Bjartur Westin 1/0, Bjarmi Kristjánsson 0/2, Bjarki Jóhannsson 0/1, Elvar Skúlason 0/1, Mikael Eiríksson 0/1, Askur Reynisson 0/1.
    Varin skot: Elvar Sigurðarson 30 af 34 (88,24%9.
    Leikskýrslan
  • Jötnar - Húnar 11-1
    Mörk/stoðsendingar: Robbe Delport 3/3, Bjartur Westin 2/1, Uni Blöndal Sigurðarson 1/3, Bjarki Jóhannsson 1/1, Mikael Eiríksson 1/1, Askur Reynisson 1/0, Aron Gautason 1/0, Magnús Sigurólason 0/2, Daníel Ryan 0/2, Jón Magnússon 0/2, Björn Jónsson 0/1.
    Varin skot: Elvar Sigurðarson 11 af 12 (91,67%).
    Leikskýrslan

3. og 4. janúar

  • Jötnar - Húnar 8-2 
    Mörk/stoðsendingar: Askur Reynisson 3/0, Arnar Kristjánsson 2/3, Stefán Guðnason 1/3, Bjarmi Kristjánsson 1/1, Alex Ingason 1/0, Bjarki Jóhannsson 0/1, Ormur Jónsson 0/1, Daníel Ryan 0/1, Agnar Agnarsson 0/1.
    Leikskýrslan
    Jötnar - Húnar 10-1
    Mörk/stoðsendingar: Alex Ingason 2/1, Stefán Guðnason 2/1, Arnar Kristjánsson 1/2, Askur Reynisson 1/2, Bjarki Jóhannsson 1/1, Brynjar Ólafsson 1/1, Ormur Jónsson 1/0, Hreiðar Ásgeirsson 1/0, Bjarmi Kristjánsson 0/2, Sölvi Blöndal Sigurðarson 0/2, Magnús Sigurólason 0/1, Daníel Ryan 0/1.
    Varin skot: Elías Rúnarsson 13 af 14 (92,86%).
    Leikskýrslan

21. og 22. mars

  • Jötnar - Húnar 7-2
    Mörk/stoðsendingar: Aron Ingason 2/1, Bjarki Jóhannsson 1/1, Bjarmi Kristjánsson 1/1, Finnur Finsson 1/0, Askur Reynisson 1/0, Björn Jónsson 1/0, Elvar Skúlason 0/3, Mikael Eiríksson 0/1, Alex Ingason 0/1, Brynjar Ólafsso 0/1.
    Varin skot: Elvar Sigurðarson 33 af 35 (91,29%).
    Leikskýrslan
    Jötnar - Húnar 1-5
    Mark/stoðsending: Sölvi Blöndal Sigurðarson 1/0, Agnar Agnarsson 0/1.
    Varin skot: Elías Rúnarsson 20 af 25 (80%).
    Leikskýrslan

28. og 29. mars

  • Húnar - Jötnar 2-5
    Mörk/stoðsendingar: Robbe Delport 2/0, Bjarki Jóhannsson 1/0, Alex Ingason 1/0, Stefán Guðnason 1/0, Arnar Kristjánsson 0/1.
    Varin skot: Elvar Sigurðarson 58 af 60 (96,67%).
    Leikskýrslan
    Húnar - Jötnar 4-5
    Mörk/stoðsendingar: Bjarmi Kristjánsson 2/1, Robbe Delport 1/2, Agnar Agnarsson 1/0, Bjarki Jóhannsson 1/0, Alex Ingason 0/1, Elvar Skúlason 0/1, Stefán Guðnason 0/1.
    Varin skot: Elvar Sigurðarson 13 af 17 (76,47%).
    Leikskýrslan

Rúnar Freyr Rúnarsson, annar þjálfara Jötna, messar yfir sínum mönnum í leiknum í gær. Fjær er Sigurður Sveinn Sigurðsson, þjálfari og formaður Skautafélagsins. Mynd: Kristján Sturluson.

Síðustu tveir leikir þessara liða eru á dagskrá í Egilshöllinni 25. og 26. apríl.