Covid-19
														
Hraðgreiningarpróf í boði á HSN
											
									
		16.09.2021 kl. 08:20
		
							
				
			
			
		
											
									Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hóf í vikunni að bjóða upp á hraðgreiningapróf vegna Covid í boði á meginstarfsstöðvum stofnunarinnar.
Fyrirkomulag PCR prófa og hraðprófa hjá HSN:
- Einkenna og sóttkvíar PCR próf eru á öllum meginstarfstöðvum.
 - Ferðamanna PCR próf þegar fólk er að fara erlendis eru einungis í boði á Akureyri og eru pöntuð í gegnum travel.covid.is
 - Ferðamanna hraðgreiningapróf, fyrir fólk sem er að fara úr landi eða koma að utan eru á öllum meginstarfstöðvum.
 - Hraðgreiningapróf nemenda og kennara í skólum og vegna viðburðahalds eru á öllum meginstarfstöðvum. Hraðgreiningapróf vegna smitgátar í skólum fara í gegnum smitrakningarteymi í samvinnu við skólana. Skráning í smitgát er í gegnum smitgat.covid.is. Hraðgreiningapróf vegna viðburðahalds eru pöntuð í gegnum hradprof.covid.is.
 
Á Akureyri er boðið upp á bæði hraðpróf og PCR próf alla sjö daga vikunnar, í Strandgötu 31, sem hér segir
- Hraðpróf klukkan 11.00 til 14.00
 - PCR próf klukkan 9.00 til 11.00