Fiskidagurinn mikli – sjáðu hvað verður í boði
									Fiskidagurinn mikli verður haldinn á Dalvík á morgun – í 20. skipti, og í tilefni stórafmælisins verður mikið um dýrðir.
Setning Fiskidagsins mikla er á Vináttukeðjunni í dag, föstudaginn 11. ágúst kl. 18.00. Fiskisúpukvöldið er svo í kvöld að vanda; fjölskyldur víða um bæinn gefa gestum og gangandi súpu. Það hefst kl. 20.15 og stendur til kl. 22.15.
Á morgun verður margt í boði. Starfsemi verður ræst á öllum matarstöðvum kl. 11.00. Hér má sjá hvað verður á matseðlinum, skv. tilkynningu frá Fiskideginum mikla.
Á grillstöðvum Fjörfisks, Marúlfs, Reynis og Hrings
- Fersk bleikja í tælenskri sesam- og engifer marineringu
 - Ferskur þorskur með kúrekabaunum
 - Brauðbollur og drykkir
 
Langgrillið – 8 metra langt gasgrill, ´65 og ´66 árgangar, vinir, fjölskyldur og velunnarar
- Fiskborgarar í brauði með Heinz majónes og tómatsósu. Nú eru borgararnir minni en áður
 
Rækjusalatsstöð - barna og unglingaráð knattspyrnunnar
- Rækjur, salat, og grænmeti í Sticky Korean BBQ sósu - Dögun
 
Loki Fish
- Soft taco „viskur“, Heinz vegan majo og chillisósa, kál og sýrður rauðlaukur
 
Friðrik V
- 1000 bragða sjávarfangssúpa
 - Byggotto með steiktri bleikju
 
Rækjustöð - Linda og Magga. Einu rækjudrottningar Íslandssögunnar
- Nýveiddar rækjur í skelinni og sojasósa
 
Sushistöð. Majó - Food and Culture og vinir
- Sushi eins og það gerist best
 
Grímsstöð. Grímur kokkur ásamt fjölskyldu og vinum
- Taco með fiskistöngum, salsa, avókadó, tómötum og hvítlaukssósu
 - Risottó bollur með sveppa hvítlauks og chilli fyllingu
 
Moorthy og fjölskylda í Indian Curry House á Akureyri
- Bleikja tandoori, chapati- brauð og rahita
 
Golfklúbburinn Hamar - Hrísiðn
- Hríseyjar- hvannargrafin bleikja
 - Reykt bleikja – Hnýfill
 - Ristað brauð – sinneps- og hunangssósa
 
Fish and chips stöð. Reykjavík Fish
- Fish and chips. Heinz majónes og tómatsósa, sinnep og malt vínedik
 
Filsustöð - Skíðafélag Dalvíkur grillar Filsur
Kjarnafæði og Friðrik V
- Filsur í brauði með sérvöldum Heinz sósum
 
Sasimistöð – sasimistjórar Addi Jelló og Ingvar Páll
- Bleikja og langreyður frá Hval hf
 - Wasabi og sojasósa
 
Harðfisksstöð - Salka Fiskmiðlun í litríkum búningum
- Íslenskur harðfiskur og íslenskt smjör
 
Síldar- og rúgbrauðstöð
- Síld og heimabakað rúgbrauð með smjöri
 - Bestu rúgbrauðsbakarar landsins
 
Kaffistöð: Kaffibrennslan á Akureyri
- Rúbín kaffi – besta kaffið
 
Íspinnastöð
- Samhentir, vinir Fiskidagsins mikla númer 1 gefa íspinna. Samhentir hafa verið með okkur frá upphafi
 
_ _ _
- Yfirkokkur: Friðrik V
 - Aðstoðarkokkar: Arnþór Sigurðsson og Arnrún María Magnúsdóttir
 - Allt brauð er í boði Gæðabaksturs
 - Allir drykkir eru í boði Egils appelsín
 - Allt meðlæti: Olíur, marinering, krydd, sósur, (HEINZ), salat, og grænmeti er í boði INNNES
 - Allur fiskur í boði Samherja nema að annað sé tekið fram
 - Allur flutningur í boði Samskipa
 - Gas á grillin í boði Olís