Fara í efni
Covid-19

„Björgum Kristnesi“ – 90 mættu á stofnfund

Um 90 manns mættu á stofnfund samtakanna Björgum Kristnesi sem haldinn var í gær, sunnudag 1. nóvember, á Hælinu, setri um sögu berklanna. Fólkið mætti „til að sýna stuðning sinn við Kristnesspítala og framtíð endurhæfingar á staðnum. Það er ljóst að málefnið snertir marga og viljinn til að standa vörð um Kristnes er mikill,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Endurhæfingarstarstarfsemi Sjúkrahússins á Akureyri hefur lengi verið á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit en var í sumar flutt til Akureyrar vegna myglu sem fannst fyrr á árinu í húsnæði Kristnesspítala. Ríkið, eigandi húsnæðisins, hefur ekki ákveðið hvort ráðist verði í viðgerðir á húsinu.

Skýrt markmið!

Markmið samtakanna er skýrt, að því er segir í tilkynningunni: Að tryggja að Kristnesspítali verði endurbættur og að endurhæfingarstarfsemi verði áfram starfrækt á Kristnesi.

„Samtökin vilja vekja athygli á mikilvægi endurhæfingar á Kristnesi, þrýsta á stjórnvöld að tryggja framtíð starfseminnar og stuðla að því að húsnæðið verði gert hæft til áframhaldandi notkunar. Þar er ekki aðeins verið að verja mikilvæga heilbrigðisþjónustu í heimabyggð heldur einnig að standa vörð um áratuga sögu, þekkingu og starf sem á sér djúpar rætur í samfélaginu.“


Til að ná markmiðum sínum hyggjast samtökin meðal annars:

  • Efla umræðu og kynningu á mikilvægi endurhæfingar á Kristnesi.
  • Þrýsta á stjórnvöld, Alþingi og ráðuneyti um að tryggja áframhaldandi starfsemi.
  • Boða til funda, senda frá sér ályktanir og standa fyrir undirskriftasöfnunum.
  • Safna fjárframlögum frá almenningi, fyrirtækjum, félagasamtökum og öðrum styrktaraðilum til endurbóta á Kristnesspítala.
  • Leita samstarfs við ríkið, eiganda hússins, heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila.
  • Gera nauðsynleg samkomulög um fjármögnun, framkvæmdir og eftirlit með endurbótum. 


Einn þingmaður mætti á fundinn

Heilbrigðisráðherra, þingmönnum Norðausturkjördæmis og framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri var boðið á fundinn. Einn þingmaður sá sér fært að mæta en tveir höfðu boðað forföll, segir í tilkynningu frá samtökunum. Tveir fulltrúar framkvæmdastjórnar SAk höfðu einnig tilkynnt forföll.

„Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, mætti á fundinn og óskaði samtökunum til hamingju með stofnunina. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, sendi hlýjar kveðjur og góðar óskir en hún komst ekki vegna veikinda.“

Í tilkynningunni segir jafnframt:

„Mætingin á stofnfundinn sýnir svo ekki verður um villst að fjöldi fólks lætur framtíð Kristness sig varða. Nú hafa samtökin verið stofnuð, stjórn verið kjörin og baráttan hafin.

Það sem þarf núna eru skýr svör frá stjórnvöldum. Hver er framtíðarsýn þeirra fyrir Kristnesspítala? Hvaða áform eru uppi um endurbætur á húsnæðinu og hvernig verður tryggt að mikilvæg endurhæfingarþjónusta haldi áfram á staðnum?

Kristnes er ekki bara hús. Þar er saga, þekking, reynsla og starfsemi sem skiptir máli fyrir fólk og samfélag. Við ætlum ekki að horfa aðgerðalaus á meðan framtíð þess er í óvissu.

Stofnfundurinn var frábær byrjun. Nú tekur við vinnan – og við erum rétt að byrja!“

Hallgrímur kjörinn formaður

Á stofnfundinum í gær var kosin stjórn félagsins. Hún er þannig skipuð:

Aðalmenn:

  • Hallgrímur Sigurðarson, matreiðslumeistari
  • Susanne Neumann, hjúkrunarfræðingur
  • María Pálsdóttir, leikkona
  • Halldór S. Guðmundsson, háskólaprófessor
  • Kristín Thorberg, hjúkrunarfræðingur

Varastjórn:

  • Kamilla Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Sigríður Hrefna Pálsdóttir, skógfræðingur
  • Brynjólfur Ingvarsson, geðlæknir