Fara í efni
BSO

Spænskur framherji kominn til Þórs

Spánverjinn Victor Bertomeu eftir æfingu Þórsara í hádeginu í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við spænskan sóknarmann, Victor Bertomeu. Hann er 33 ára og lék síðast með liði Kerala Blasters á Indlandi. Bertomeu kom til Akureyrar í gær, æfði með nýju liðsfélögunum í hádeginu í dag og gæti orðið í leikmannahópnum í nágrannaslagnum gegn KA á mánudagskvöldið.
 
Bertomeu hefur einnig leikið í Indónesíu, Hong Kong og á Ítalíu á undanförnum árum auk þess að leika heima á Spáni. Samningur hans við Þór er til loka keppnistímabilsins 2027.