Fara í efni
BSO

Ingimar á leið til Århus Fremad í Danmörku

Ingimar Arnar Kristjánsson skorar fyrir Þór gegn Val í Bestu deildinni á dögunum. Hann hefur gert þrjú mörk í deildinni í sumar. Bjarni Mark Antonsson er til vinstri og hægra megin er Markus Lund Nakkim. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ingimar Arnar Kristjánsson, knattspyrnumaður í Þór, hefur verið seldur til Århus Fremad sem leikur í næst efstu deild í Danmörku. Hann heldur utan í dag, fer í hefðbundna læknisskoðun á mánudaginn og skrifar undir þriggja ára samning ef danskir læknar verða ekki varir við neitt athugavert.

Framherjinn sprettharði meiddist þegar hann skoraði í deildarleiknum gegn Val á VÍS-velli Þórs 28. júní en það ætti ekki að koma að sök. Brotið var á Ingimari um leið og hann skoraði með þeim afleiðingum að liðband í öxl slitnaði og hann hefur ekki leikið síðan. Gert er ráð fyrir að Ingimar verði tilbúinn í slaginn á ný eftir tvær til þrjár vikur.

Danska liðið sýndi Ingimari áhuga í síðustu viku og málið gekk hratt fyrir sig. „Mér fannst þetta spennandi og langaði að stökkva á það,“ segir hann og eftir að félögin komust að samkomulagi var ekkert því til fyrirstöðu að pakka niður í tösku og leggja í hann til Árósa.

Ingimar hefur gert þrjú mörk í Bestu deildinni í sumar; sigurmarkið (2:1) gegn Val í Reykjavík í fyrstu umferðinni, fyrra markið í tapi (5:2) fyrir KR í Reykjavík í 2. umferð og fyrra markið í tapi (4:2) fyrir Val á heimavelli.

Framherjinn, sem er nýorðinn 21 árs, lék fyrst með meistaraflokki Þórs sumarið 2021 þegar hann kom við sögu í tveimur leikjum í Lengjudeildinni, næstu efstu deild Íslandsmótsins, þá 16 ára gamall.

Ingimar gerði þrjú mörk í Lengjudeildinni í fyrrasumar, þar á meðal sigurmarkið (2:1) gegn Þrótti í Reykjavík í lokaumferðinni, en sá sigur tryggði Þór efst sæti í deildinni og sæti í efstu deild á ný eftir langt hlé.