50 ár frá fyrsta leik eftir ÍBA-tímann

Í dag eru 50 ár frá fyrsta leik Akureyringa á Íslandsmótinu í knattspyrnu eftir að Þór og KA hófu að leika undir eigin merkjum í kjölfar þess að lið Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) féll úr efstu deild haustið 1974. Akureyrarfélögin höfðu þá teflt fram sameiginlegu liði á Íslandsmótinu síðan á fimmta áratugnum.
Akureyrarliðin þurftu að byrja „á botninum“ sumarið 1975. Íslandsmótinu var á þessum tíma skipt í þrjár deildir og liðin því skráð til leiks í 3. deild.
Það voru Þórsarar sem riðu á vaðið sumarið 1975. Fyrsti leikurinn fór fram á malarvellinum á Blönduósi, þar sem Þór sigraði lið USAH 1:0 með marki Óskars Gunnarssonar í fyrri hálfleik. Þetta var laugardaginn 7. júní, daginn eftir 60 ára afmæli Þórs. Óskar heitinn var aðeins 17 ára, fagnaði ekki 18 ára afmælinu fyrr en seinna um sumarið.
- Leikmannahópinn má sjá á meðfylgjandi leikskýrslu. Þar má líka sjá að dómari var Guðmundur Búason og línuverðir Hreinn Hrafnsson og Þóroddur Hjaltalín.
- Þeir sem hófu leikinn fyrir Þór voru: Samúel Jóhannsson, Oddur Óskarsson, Sigurður Lárusson, Guðni Jónsson, Gunnar Austfjörð, Pétur Sigurðsson, Árni Gunnarsson, Aðalsteinn Sigurgeirsson (fyrirliði), Jón Lárusson, Einar Sveinbjörnsson og Óskar Gunnarsson.
- Varamenn voru Ragnar Þorvaldsson, Páll Sigurgeirsson, Gunnar Malmquist Gunnarsson, Ómar Friðriksson og Ævar Jónsson.
- Þórsarar gerðu eina breytingu á liðinu í leiknum: hægri bakvörðurinn Oddur Óskarsson fór af velli og í hans stað kom Gunnar Malmquist Gunnarsson.
- Þjálfari Þórs þetta sumar var Steingrímur Björnsson.
Leikskýrsla tímamótaleiksins, þegar Þór mætti USAH á Blönduósi 7. júní árið 1975, og Óskar Gunnarsson sem gerði eina markið í þessum fyrsta leik. Myndin af Óskari er tekin þegar Þór og KA mættust á Akureyrarvelli seinna um sumarið. Mynd: Skapti Hallgrímsson
- Þórsarar drógust í E-riðil 3. deildar með Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga (USAH), Magna frá Grenivík og Ungmennasambandi Eyjafjarðar (UMSE).
Um haustið mættust Akureyrarliðin í úrslitaleik 3. deildar þar sem Þór sigraði 4:0 en bæði fóru upp og léku því í 2. deild sumarið 1976.
Meira um þetta eftirminnilega knattspyrnusumar síðar