Fara í efni
Blak

Þórsarar selja Balde til Vestra á Ísafirði

Þórsarar hafa selt senegalska knattspyrnumanninn Ibrahima Balde til Vestra á Ísafirði. Balde lék einmitt með Vestra áður en hann gekk til liðs við Þórsara fyrir síðasta keppnistímabil.

Þessi tilkynning var birt á samfélagsmiðlum Þórs í kvöld:

Knattspyrnudeild Þórs og knattspyrnudeild Vestra hafa náð samkomulagi um félagaskipti Ibrahima Balde til Vestra. Balde kom sem stormsveipur inn í Þorpið fyrir rúmu ári síðan og var í lykilhlutverki þegar Þórsliðið vann Lengjudeildina í fyrra. Við þökkum Ibra fyrir mikið og gott framlag til félagsins og óskum honum góðs gengis í framtíðinni.

  • Frétt akureyri.net í morgun:

Ibrahima Balde á förum frá Þór