Fara í efni
Blak

Slök frammistaða Þórs gegn Stjörnunni

Sigfús Fannar Gunnarsson er kominn á blað í Bestu deildinni. Hann gerði fyrsta mark sitt í deildinni í Garðabæ í gærkvöld. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar sóttu ekki gull í greipar Stjörnunnar þegar liðin mættust inni í Miðgarði, fjölnotaíþróttahúsi Garðbæinga, í efstu deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Heimamenn réðu lögum og lofum og komust í 4:0 áður en Þórsliðið rankaði við sér og náði að svara með tveimur mörkum. Þórsarar eru því áfram í neðsta sæti deildarinnar og virðast ekki líklegir til að þoka sér ofar í töfluna.

Stjörnumenn komu miklu ákveðnari inn í þennan leik en Þórsarar. Voru sterkari og fljótari og leikgleðin geislaði af þeim. Þórsliðið var alveg úti á þekju framan af leik, töpuðu öllum návígjum, voru litlir í sér og alltaf skrefi á eftir andstæðingunum. Stjarnan skoraði fyrsta mark leiksins á 6. mínútu, þegar Örvar Eggertsson stýrði sendingu Birnis Snæs Ingasonar í netið af markteig. Þá voru Þórsarar varla búnir að koma við boltann, nema til að hreinsa hann burt. Stjarnan bætti við marki á 41. mínútu þegar Örvar Eggertsson fékk nægan tíma úti hægra megin til að senda boltann fyrir markið þar sem Emil Atlason var á fjærstönginni og átti ekki í erfiðleikum með að renna knettinum í netið.

Ekkert að frétta hjá Þór í fyrri hálfleik

Undir lok fyrri hálfleiks töpuðu Þórsarar boltanum klaufalega á miðjum eigin vallarhelmingi og Stjörnumenn voru miklu grimmari og hirtu boltann sem barst til Birnis Snæs við vítateigslínu vinstra megin. Hann lék inn í teig og skoraði með föstu skoti. 3:0 stóð í leikhléi og leikurinn í raun búinn. Þórsarar áttu ekkert skot á markrammann í fyrri hálfleik en Stjarnan fimm. Þá fékk Stjarnan sjö hornspyrnur í fyrri hálfleik en Þór enga. Það var hreinlega ekkert að frétta hjá Þórsliðinu í fyrri hálfleik, sem er furðulegt í ljósi þess að núna er hver leikur upp á líf eða dauða.

Leikurinn jafnaðist eftir hlé því bæði mættu Þórsarar örlítið sprækari til leiks en fyrir hlé og Stjörnumenn sennilega sáttir við stöðuna. Heimamenn fengu dauðafæri snemma í seinni hálfleik áður en fjórða markið kom á 61. mínútu. Emil Atlason skoraði af markteig eftir sendingu frá vinstri. Síðustu 20 mínúturnar bitu Þórsarar loksins almennilega frá sér og réðu gangi leiksins. En það var bara of seint. Sigfús Fannar Gunnarsson minnkaði muninn á 72. mínútu með góðri afgreiðslu af markteig eftir frábæra fyrirgjöf Bjarna Guðjóns Brynjólfssonar. Fyrsta mark markakóngs Lengjudeildarinnar frá í fyrra og kærkomið fyrir hann og Þórsliðið að fá hann á blað.

Á 89. mínútu minnkuðu Þórsarar muninn í 4:2 þegar Christian Jakobsen skallaði fyrirgjöf frá vinstri í markið en á milli markanna hafði varamaðurinn Peter Ingi Helgason tvívegis komist í góð færi sem fóru forgörðum. Ágúst Eðvald Hlynsson átti síðasta orðið í leiknum þegar hann þrumaði knettinum framhjá úr ágætu færi í vítateignum.

Peter Ingi Helgason kom inná þegar hálftími var eftir, fékk tvö góð færi en náði ekki að skora. Mynd: Ármann Hinrik. 

Síðustu tveir leikirnar gríðarlega þýðingarmiklir

Enn eitt tapið hjá Þór staðreynd og það hlýtur að vera áhyggjuefni að liðið skuli mæta til leiks hvað eftir annað með hugarfar og baráttuskort sem sæmir ekki liði sem er að berjast fyrir lífi sínu. Í gærkvöld var liðið arfaslakt fyrir hlé en vaknaði til lífsins seinnihluta leiksins þegar úrslitin voru í raun ráðin.

Framundan eru tveir leikir gegn liðum sem eru skammt fyrir ofan Þór í töflunni og það eru leikir sem liðið verður að mæta tilbúið í, ætli það sér að sýna að það eigi heima í deild þeirra bestu.

Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Yann Emmanuel Affi (Þorri Ingólfsson 82.), Ásbjörn Líndal Arnarsson (Vilhelm Ottó Biering Ottósson 46.), Bjarni Guðjón Brynjólfsson – Einar Freyr Halldórsson (Sigfús Fannar Gunnarsson 56.), Kevin Vazquez Comesaña, Christian Jakobsen, Atli Sigurjónsson (Peter Ingi Helgason 63.) – Ágúst Eðvald Hlynsson, Victor Bertomeu (Fannar Daði Malmquist Gíslason 63.).

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni


20 umferðir eru að baki og því einungis tveir leikir eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.

Næsti leikur Þórs er á útivelli gegn ÍBV sem er núna í 10. sæti, en síðustu leikirnir fyrir skiptingu eru gegn liðum sem eru í neðri hlutanum.

  • Sunnudag 30. ágúst 16:00
    ÍBV - Þór
  • Sunnudag 6. september 14:00
    Þór - FH