Fara í efni
Blak

Sanngjarn sigur KR og KA sárvantar stig

Hallgrímur Jónasson og Eiður Smári Guðjohnsen stýrðu KA liðinu í fyrsta skipti í sameiningu í gær. Myndir: Ármann Hinrik

Mörkum rigndi í glampandi sólskini þegar KA tók á móti KR í Bestu deildinni í fótbolta í gær. Mörkin urðu átta eins og í síðasta leik KA en skiptust ekki jafnt eins og þá; KR-ingar unnu öruggan og sanngjarnarn sigur, 5:3, þar sem þriðja mark KA var gert með síðustu spyrnu leiksins.

KA er enn með 16 stig í næst neðsta sæti deildarinnar, einu stigi fyrir ofan nágrannana í Þór, þegar 20 leikir eru að baki og tveir eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt.

Ein breyting var gerð á byrjunarliði KA frá 4:4 jafnteflinu við Val í síðustu umferð. Fyrirliðinn, Hans Viktor Guðmundsson, var í leikbanni þá og sneri vitaskuld aftur í miðja vörnina; var þar við hlið Birgis Baldvinssonar í stað André Rømer sem lék á miðsvæðinu en Jeppe Pedersen tók sér sæti á varamannabekknum.

Stuðningsmenn KA voru eðlilega áhugasamir um leikinn í gær. Spennan jókst eftir að Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í þjálfarateymið og áhorfendur voru 785. Mynd: Ármann Hinrik

Ótrúlegt, en þó ekki

Eiður Smári Guðjohnsen, sem ráðinn var þjálfari KA í vikunni við hlið Hallgríms Jónassonar, nefndi í sjónvarpsviðtali við Sýn fyrir leik að KR hefði verið skemmtilegasta lið landsins í sumar; hann talaði um rokk og ról-fótbolta og segja mætti að KR-ingar spiluðu „frjálslega“. Flestir eru örugglega á sama máli og KR-ingar ollu stuðningsmönnum sínum ekki vonbrigðum. 

KA-menn gerðu þrjú mörk í leiknum og hefðu í raun getað skorað meira en það sama má sannarlega segja um KR-inga. Þeir léku vel, voru mun meira með boltann og fengu tækifæri til að bæta við mörkum; Eiður og félagar í þjálfarateyminu hljóta að vera sammála því að lærisveinar þeirra hafi varist full frjálslega.

Fyrri hálfleikurinn var ótrúlegur þó að varla sé leyfilegt að nota það orð þegar KR-ingar eru annars vegar. Þegar þeir mæta til leiks getur bókstaflega allt gerst. Boðið var upp á sex mörk í þeim leikhluta og þar af gerði KA tvö.

Aron illviðráðanlegur

KA-strákarnir mættu fullir eldmóðs til leiks en e.t.v. einum of grimmir. Aðeins voru liðnar 2 mínútur og 40 sekúndur þegar Birgir Baldvinsson braut á einum gestanna rétt utan vítateigs, aukaspyrna dæmd og Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, sem hefur verið illviðráðanlegur í sumar var ekki á þeim buxunum að bregða út af vananum. Hann tók spyrnuna og skoraði með glæsilegu skoti yfir varnarvegginn; boltinn fór efst í nærhornið. Svo virtist sem Ívar markvörður reiknaði með að boltinn færi framhjá.


Aron var aftur á ferðinni á ferðinni á níundu mínútu og kom KR í 2:0. Sigurður Breki Kárason tók hornspyrnu frá vinstri, Aron skaut upp kollinum þeim megin í markteignum og skallaði boltann í netið; KA-menn steingleymdu honum og Ívar í markinu var ekki nógu fljótur að átta sig.

KA jafnar á 10 mínútum

Sviptingar eru alvanalegar í leikjum KR-inga og tveggja marka forysta þeirra hafði verið þurrkuð út 10 mínútum eftir að Aron gerði seinna markið.

Hallgrímur Mar Steingrímsson minnkaði muninn á 14. mín. Boltinn barst til hans nokkru framan við miðlínu, Hallgrímur var á undan tveimur KR-ingum og skoraði með laglegu skoti langt utan af velli; Halldór markvörður var nokkuð frá marki sínu eins og honum er uppálagt og náði ekki að verja bogaskot Hallgríms eins og sjá á myndum Ármanns Hinriks hér að neðan.


Daninn Andre Rømer jafnaði svo 2:2 þegar 20 mín. voru liðnar. Hallgrímur Mar tók hornspyrnu frá hægri og KR-ingar lögðu sig ekki verulega fram til að koma í veg fyrir mark; Rømer var tiltölulega óáreittur þegar hann skallaði boltann, eins og sjá má á myndunum, og boltinn sveif í fallegum boga yfir markvörðinn og aðra KR-inga.


Eftir tveggja marka syrpu KA-manna tóku gestirnir aftur við sér og bættu tveimur mörkum við áður en fyrri hálfleikurinn var úti.

Aron Sigurðarson gerði þriðja mark sitt á 28. mín. með skoti við vítateigslínu eftir samvinnu hans og Sigurðar Breka og sá síðarnefndi átti stóran þátt í fjórða markinu sem Orri Hrafn Kjartansson gerði á 37. mín. Gestirnir tættu vörn KA í sig og Sigurður Breki átti sendinguna – snilldarsendingu – á Orra Hrafn í vítateignum og hann skoraði af stuttu færi.

Staða KR var sannarlega vænleg í hálfleik og hún varð enn betri strax á fjórðu mín. seinni hálfleiks. Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði þá með skalla eftir fyrirgjöf frá hægri. Sýndi ekki ósvipaða takta og Rømer þegar hann jafnaði. Staðan þarna orðin 5:2 og úrslitin í raun ráðin. KR-ingar voru mikið með boltann og ógnuðu marki KA nokkrum sinnum en heimamenn fengu líka tækifæri og í blálokin minnkaði bakvörðurinn Kári Gautason muninn. Hann fékk sendingu inn á vítateig frá Hallgrími Mar, komst framhjá varnarmanni og þrumaði boltanum framhjá Halldóri markverði. Fyrsta mark Kára fyrir KA orðið að veruleika.

Hallgrímur Jónasson og Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfarar KA, á hliðarlínunni í gær. Mynd: Ármann Hinrik

Það var sannarlega líf og fjör á Greifavellinum í gær en uppskera KA var engin á þann eina mælikvarða sem máli skiptir um þessar mundir. Liðið vann síðast leik 12. júlí, hefur síðan gert þrjú jafntefli og tapað þremur leikjum og er í fallsæti. KR er einn allra erfiðasti mótherjinn í deildinni þannig að nánast má taka leiki gegn Vesturbæjarliðinu út fyrir sviga þegar rýnt er í stóru myndina en hvað sem því líður er staða KA afleit. Nefnt hefur verið að mannskapurinn sé of góður til að vera í þessari stöðu, en hann er það samt. Meiðsli hafa vissulega sett strik í reikninginn í sumar en ekki þýðir að fást um það heldur horfa fram á veginn og einblína á að ná í nauðsynleg stig til þess að ekki fari illa.

KA: Ívar Arnbro Þórhallsson – Kári Gautason, Hans Viktor Guðmundsson, Birgir Baldvinsson (Markús Máni Pétursson 60.), Samuel Karl Kroon (Jeppe Pedersen 68.) – Guðjón Ernir Hrafnkelsson (Jakob Héðinn Róbertsson 46.), André Rømer, Mikael Breki Þórðarson (Valdimar Logi Sævarsson 75.) – Adam Ægir Pálsson (Daniel Dejan Djuric 60.), Jakob Snær Árnason, Hallgrímur Mar Steingrímsson.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni


20 umferðir eru að baki og því einungis tveir leikir eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.

KA á tvo leiki eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt, gegn liðunum í 3. og 4. sæti.

  • Sunnudag 30. ágúst 17:00
    Fram - KA
  • Sunnudag 6. september 14:00
    KA - Breiðablik