Fara í efni
Blak

Kvennalið Þórs áfram á beinu brautinni

Ksenija Kuzmanovic var stigahæst í Þórsliðinu í öruggum sigri liðsins á ÍR í gær. Myndin er úr viðureign Þórs og Skallagríms í Borgarnesi fyrr í haust. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Kvennalið Þórs í körfuknattleik vann öruggan sigur á ÍR-ingum í Breiðholtinu í gær. Munurinn varð 19 stig þegar upp var staðið, lokatölur 65-84. Þetta er þriðji sigur Þórsliðsins í röð og sá þriðji í fjórum leikjum á tímabilinu.

Fyrsti leikhlutinn var nokkuð jafn, en Þórsliðið þó með frumkvæðið og fjögurra stiga forskot að honum loknum. Þegar leið á fyrri hálfleikinn kom góður kafli og forystan orðin 19 stig áður en fyrri hálfleiknum lauk eftir 16-4 áhlaup Þórs á rúmum þremur mínútum fyrir lok fyrri hálfleiksins.

Þórsliðið var svo með leikinn áfram í öruggum höndum í seinni hálfleikinn, jók muninn í 28 stig áður en þriðja leikhluta lauk. ÍR-ingar minnkuðu svo muninn niður í 19 stig í fjórða leikhlutann, en niðurstaðan öruggur sigur Þórs.

ÍR - Þór (20-24) (15-30) 35-54 (12-21) (18-9) 65-84

Kzenija Kuzmanovic var stigahæst í Þórsliðinu í gær, skoraði 25 stig, en Emma Karólína Snæbjarnardóttir kom fast á hæla henni með 23 stig. Nile Miller tók 16 fráköst. Hjá ÍR var Janiya Foskey langstigahæst með 29 stig.

Tölfræði Emmu Karólínu það sem af er vetri er mögnuð, 30 stig að meðaltali í leik, níu fráköst, fimm stoðsendinggar og 36,5 punktar í framlag að meðaltali.

Með sigrinum er Þór komið upp að hlið efstu liða, en Selfoss, Þór Þorlákshöfn, Keflavík b og Þór Akrueyri hafa öll unnið þrjá leiki. 

Helstu tölur, stig/fráköst/stoðsendingar:

ÍR

Janiya Foskey 29/12/0, Heiða Sól Clausen Jónsdóttir 17/0/2, Gréta Hjaltadóttir 13/7/3, Veronika Amy Ásgeirsdóttir 2/4/2, Embla Ósk Sigurðardóttir 2/3/0, Jóhanna Wiktoría Harðardóttir 2/1/4, Þórdís Rún Hjörleifsdóttir 0/2/0.

Þór

Ksenija Kuzmanovic 25/3/1, Emma Karólína Snæbjarnardóttir 23/10/6, Nile Miller 9/16/0, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl 8/3/2, Hrefna Ottósdóttir 5/2/2, María Sól Helgadóttir 5/2/0, Kristný Halla Bragadóttir 5/0/1, Sigurlaug Eva Jónasdóttir 4/5/0, Karen Lind Helgadóttir 0/2/3.

Leikskýrslan og tölfræði

Staðan í deildinni

Næst:

  • Laugardagur 7. nóvember
    1. deild kvenna, 5. umferð
    Íþróttahöllin í Njarðvík kl. 16
    Njarðvík b - Þór