Blak
Körfubolti í Grafarvogi – Ofurhelgi í Laugardal
23.10.2026 kl. 06:00
Íshokkí og körfubolti á dagskrá kvöldsins, í Grafarvogi og Laugardalnum.
Útileikjadagur hjá íþróttaliðum Akureyrar, reyndar aðeins tvö þeirra á faraldsfæti í dag. Karlalið Þórs í körfubolta fer í Grafarvoginn og mætir Fjölni og SA Víkingar mæta í Laugardalinn í fyrstu Ofurhelgi vetrarins í Toppdeild karla í íshokkí.
- Körfubolti: Karlalið Þórs í körfuboltanum hefur ekki enn náð að vinna leik það sem af er tímabilinu, þrjú töp í deildinni og eitt í bikarnum. Þórsarar sækja Fjölni heim í fjórðu umferð 1. deildarinnar í kvöld.
- Íshokkí: Fyrsta Ofurhelgin af þremur í Toppdeild karla í íshokkí er fram undan. Þetta fyrirkomulag var prófað í fyrra og hefur greinilega tekist það vel að ákveðið var að halda áfram með það. Ofurhelgin felst í því að meistaraflokksliðin þrjú í Toppdeild karla, SA, SR og Fjölnir mætast öll einu sinni á sama stað yfir helgina. Ofurhelgarnar verða þannig einu sinni á vetri í hverri skautahöll. Sú fyrsta fer fram í Skautahöllinni í Laugardal núna um helgina. SA Víkingar, sem unnu eftirminnilegan 6-0 sigur á SR um liðna helgi, spila sína leiki á í kvöld og á morgun. Þeir mæta SR í kvöld og Fjölni á morgun. Reykjavíkurfélögin mætast svo á sunnudag. Liðið sem heldur Ofurhelgina fær hvíldardag á milli, spilar á föstudegi og sunnudegi.
- Körfubolti
1. deild karla, 4. umferð
Dalhús í Grafarvogi kl. 19:15
Fjölnir - Þór
- Íshokkí
Toppdeild karla, Ofurhelgi
Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
SR - SA
