Fara í efni
Blak

Körfubolti: 30 stiga tap Þórsara fyrir Fjölni

Christian Caldwell í baráttu við Fjölnismenn í fyrri leik liðanna í vetur. Hann var langstigahæstur Þórsara í leiknum gærkvöld með 31 stig. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Þór tapaði með 30 stiga mun fyrir Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Lokatölur 105-75. Þórsarar eru áfram í 10. sæti deildarinnar.

Heimamenn í Grafarvoginum höfðu yfirburði frá upphafi leiks, unnu fyrsta leikhlutann með 11 stigum og annan leikhluta með 22 stigum þar sem Þórsarar skoruðu aðeins tíu stig, staðan í leikhléi 59-26. Seinni hálfleikurinn var jafnari, en munurinn hélst áfram í kringum 30 stigin og lokaniðurstaðan 30 stiga sigur Fjölnis, 105-75.

Fjölnir - Þór (27-16) (32-10) 59-26 (25-24) (21-25) 105-75

Christian Caldwell var langstigahæstur Þórsara með 31 stig, raunar sá eini sem komst í tveggja stafa tölu. Sigvaldi Eggertsson skoraði flest stig Fjölnismanna, 25.

Helstu tölur Þórsliðsins, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Christian Caldwell 31/13/1 - 31 framlagspunktur
  • Týr Óskar Pratiksson 9/2/0
  • Finnbogi Páll Benónýsson 8/4/1
  • Eiríkur Frímann Jónsson 7/5/5
  • Pétur Cariglia 7/4/1
  • Arngrímur Friðrik Alfreðsson 7/2/0
  • Axel Arnarsson 3/2/5
  • Hákon Hilmir Arnarsson 3/2/2
  • Smári Jónsson 0/3/2

Tölfræði leiksins.

Staðan í deildinni.

Þórsarar eru áfram í 10. sæti deildarinnar með þrjá sigra eftir 19 umferðir. Hamar er í sætinu fyrir neðan, einnig með þrjá sigra, og Fylkir í botnsætinu með tvo sigra. Þessi tvö lið eru einmitt andstæðingar Þórsara í tveimur næstu leikjum.